fbpx
Fimmtudagur 18.júlí 2024
Eyjan

Bjarkey: „Klaufalega orðað hjá mér“ – „Landsbyggðarþingmenn eiga ekki að þurfa að borga með sér“

Trausti Salvar Kristjánsson
Fimmtudaginn 15. mars 2018 12:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frétt Eyjunnar í gær um Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur, þingflokksformann VG, hefur vakið mikla athygli, en Bjarkey sagði í þætti á Hringbraut að greiðsla sem hún þiggur frá Alþingi fyrir húsnæðis- og dvalarkostnað sinn sem landsbyggðarþingmanns, nægði ekki til að greiða af húsnæðisláninu hennar. Greiðsla Alþingis til Bjarkeyjar er rúmar 187 þúsund krónur á mánuði.

 

Í samtali við Eyjuna í dag sagðist Bjarkey hafa komist klaufalega að orði í þættinum, málið snerist um allt annan hlut:

„Það er látið að því liggja að þingmenn séu jafnsettir, eins og  viðbrögðin eru. Mín nálgun er þessi: Landsbyggðarþingmenn eiga ekki að þurfa að borga með sér. Þetta snýst ekki um hvort Alþingi eigi að borga íbúð fyrir þingmann í Reykjavík. Alveg sama hvort þú leigir eða kaupir, heldur snýst þetta um að þingmenn sitji við sama borð, þegar kemur að því að geta sótt vinnu sína. Það skiptir engu máli hvort launin eru 300 þúsund eða milljón. Það má alveg segja það að þetta hafi verið klaufalega orðað hjá mér, að þetta dugi ekki fyrir afborgunum af lánum. Því þetta snýst ekki um það, heldur að þetta dugar ekki fyrir því að halda sér húsnæði. Með öllum þeim rekstrarkostnaði sem því fylgir, hvort sem er á leigumarkaði eða til húsnæðiskaupa.“

 

Bjarkey vildi ekki taka neina afstöðu til þess hvernig útfærsla Alþingis ætti að vera þannig að jafnræði ríkti meðal þingmanna.

Hún tók þó fram að þessar viðbótargreiðslur Alþingis þyrftu að vera „til sífelldrar endurskoðunar.“

 

Landsbyggðarþingmenn fá allir 134.041 krónur mánaðarlega í húsnæðis- og dvalarkostnað og geta að auki sótt um álagsgreiðslu sem nemur 53.616 krónum, haldi þeir annað heimili í höfuðborginni.

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dagfari: Látum ekki koma fram við okkur eins og búfénað – eini ómöguleikinn er þegar þingið hlýðir ekki þjóðinni

Dagfari: Látum ekki koma fram við okkur eins og búfénað – eini ómöguleikinn er þegar þingið hlýðir ekki þjóðinni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hæðist að Sigmundi og upphlaupi hans í gær – „Það má brosa að því þegar formaðurinn baunar“

Hildur hæðist að Sigmundi og upphlaupi hans í gær – „Það má brosa að því þegar formaðurinn baunar“