Ekki eru allir á eitt sáttir um greiningu þess sem á sér stað innan verkalýðshreyfingarinnar þessi dægrin. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hefur talað um „byltingu“ í þeim skilningi að grasrótaröflin séu að taka yfir verkalýðshreyfinguna, gegn ríkjandi öflum og formannskjör Sólveigar Önnu Jónsdóttur í Eflingu sé ágætt dæmi um það.
Hinsvegar bendir Björn Bjarnason, fyrrum ráðherra Sjálfstæðisflokksins, á að byltingin sú atarna sé máske ekki eins fjölmenn og gefið sé í skyn, eða ætla mætti:
„Afgerandi sigur í fyrstu listakosningunni í Eflingu hlaut B-listi, nýtt framboð sem Sólveig Anna Jónsdóttir leiddi. Hlaut B-listinn 2099 atkvæði eða um 80% greiddra atkvæða. A-listi sem studdur var af fráfarandi stjórn hlaut 519 atkvæði. Af 16.578 félagsmönnum á kjörskrá nýttu einungis 2.618 atkvæðisrétt sinn. […] Sé talan á heimasíðu félagsins um 27.000 félagsmenn Eflingar rétt voru um 10.000 færri félagsmenn á kjörskrá og greiddu aðeins um 10% félagsmanna atkvæði í kosningunum og hefur sigurlisti Sólveigar Önnu stuðning um 8% félagsmanna. Þetta endurspeglar sorglega lítinn félagslegan áhuga.“
Þá reifar Björn niðurstöður stjórnarkjörs VR sem lauk í gær, en Ingibjörg Ósk Birgisdóttir, sem var endurkjörin í stjórn VR, sagði í Morgunblaðinu að Ragnari Þór hefði mistekist að koma sínum mönnum að í stjórninni og velti því fyrir sér hvort hann væri því kominn í minnihluta í eigin stjórn. Ragnar Þór kom inn tveimur mönnum í stað fimm, samkvæmt Ingibjörgu og kvaðst sáttur við sinn hlut í samtali við Morgunblaðið. Björn nefnir lága kosningaþátttöku í stjórnarkjörnu:
„Alls greiddu 3.345 atkvæði en á kjörskrá voru 34.980 félagsmenn. Kosningaþátttaka var því 9,56% eða álíka mikil og í listakosningunum í Eflingu. Ragnari Þór tókst ekki að „hreinsa út úr“ stjórninni fólk sem honum er ekki að skapi eins og t.d. Ingibjörgu Ósk Birgisdóttur, 2. varaforseta ASÍ. Hún telur ástæðu fyrir Ragnar Þór að velta fyrir sér hvort hann njóti stuðnings meirihluta stjórnar VR,“
segir Björn. Hann telur þetta kaldar staðreyndir um stöðu þeirra sem „hæst láta“ og talar um blekkingu:
„Þetta eru kaldar staðreyndir um stöðu þeirra innan verkalýðshreyfingarinnar sem hæst láta og segjast ætla að „rugga bátnum“ með því að sprengja upp sátt á vinnumarkaði næsta haust og hreinsa til innan ASÍ. Auðvitað kann lítil þúfa að velta þungu hlassi innan ASÍ en að halda því fram að Sólveig Anna eða Ragnar Þór njóti einhvers fjöldafylgis eða sigrar þeirra í kosningum boði eitthvert uppgjör innan þjóðfélagsins er einfaldlega blekking. Þeim tókst að virkja lítinn hóp innan stéttarfélaga sinna gegn ráðandi öflum. Valdataka þeirra er fyrst og síðast afleiðing félagslegrar deyfðar í VR og Eflingu, tveimur fjölmennustu stéttarfélögum landsins.“
Þá gerir Björn athugasemdir við kjörskrá VR:
„Tölurnar hjá Eflingu: 27.000 félagsmenn og 16.578 á kjörskrá kunna að skýrast af því að félagið semur fyrir 27.000 manns en 16.578 af þeim hafa skráð sig í félagið. Að 34.980 séu á kjörskrá hjá VR má líklega rekja til þess að þar á bæ skrá menn þá í félagið sem hefja störf hjá viðsemjendum VR. Hvernig þessi VR-aðferð samræmist rétti manna til félagafrelsis er athugunarefni.“