Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir í Morgunblaðinu í dag að formannskjörið í Eflingu sé enn eitt ákallið um breytingar, en þar bar framboð Sólveigar Önnu Jónsdóttur sigur úr býtum. Ragnar Þór var kjörinn fyrir um ári síðan, en hann segir framboð sitt hafa verið vantraustsyfirlýsing á ákveðna þætti og aðila innan hreyfingarinnar. Síðan hafi fleiri fylgt í kjölfarið:
„Síðan má segja að grasrótin hafi stigið fram innan Kennarasambands Íslands (KHÍ). Það gerðist fyrst með kjöri Ragnars Þórs Péturssonar sem formanns KHÍ. Þá fór grasrótarmaður gegn ríkjandi öflum. Síðan gerðist það sama hjá Félagi grunnskólakennara þegar Þorgerður Laufey Diðriksdóttir er kjörin formaður. Bæði vinna yfirburðasigur. Nú síðast stígur Sólveig Anna Jónsdóttir fram í Eflingu með ekki ósvipuðum hætti og við gerðum í hallarbyltingunni árið 2009 í VR. Það var listakosning hjá Eflingu og niðurstaðan er ótrúleg.“
Hann gagnrýnir einnig kosningakerfið hjá Eflingu, en VR bauð upp á rafræna kosningu fyrst árið 2009 sem hann segir opnara ferli.
Þá segir Ragnar Þór að þeir sem hafa veitt verkalýðshreyfingunni forystu hafi ekki stigið nægilega fast til jarðar, sem hafi opnað dyr fyrir fólk eins og hann og Sólveigu Önnu. En fleiri hallarbyltingar séu í vændum:
„Af hverju er að verða þessi mikla breyting? Jú, það er vegna þess að þeir sem á undan hafa gengið hafa ekki þótt stíga nógu fast til jarðar að mati félagsmanna. Þess vegna hafa þeir ekki náð að endurnýja umboðið. Formannskjör síðustu mánaða undirstrika að verkalýðshreyfingin hefur sofið værum svefni. Þeir sem hafa verið í forsvari hafa haft fámennan hóp í kringum sig sem hefur ekki lesið kröfur samfélagsins nógu vel. Þegar á reynir og þessir aðilar ætla að endurnýja umboðið kemur í ljós að þeir hafa í raun ekkert bakland. Það verður mjög athyglisvert að fylgjast með framhaldinu. Það er komið mótframboð í Félagi málm- og véltæknimanna. Það er líka komið mótframboð í Verslunarmannafélagi Suðurnesja. Þar hefur ríkt gríðarleg óánægja meðal starfsfólks á flugvellinum. Mér skilst að mótframboð séu að koma fram í fleiri félögum.“
Staksteinar Morgunblaðsins virðast ekki vera á sama máli og Ragnar Þór. Þar er sagt að áhugaleysi launamanna á „þessari starfsemi“ sem verkalýðsbaráttan er, hafi komið glögglega í ljós í nýafstöðnum kosningum Eflingar, en kjörsókn var aðeins 15.8 prósent. Fékk Sólveig Anna 12,7 prósent. Í fyrra, þegar Ragnar Þór var kjörinn formaður VR, var kjörsóknin 17,1 prósent og hlaut hann 10,7 prósent.
Staksteinar segja þetta áhugaleysi gera umboð formannanna óljóst, sem sé áhyggjuefni.