Niðurstöður Deloitte liggja nú fyrir um rekstur sjávarútvegsfyrirtækja árið 2016, áætlaða þróun rekstrar þeirra á árinu 2017 og greiningu á áhrifum gengisþróunar á virðiskeðju sjávarútvegsins. Í skýrslunni, sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kallaði eftir, styðja niðurstöðurnar þá þróun sem Hagstofan hafði áður sett fram, um hagnað sjávarútvegsfyrirtækja árin 2015-16, að heildartekjur hafi lækkað.
Helstu niðurstöður eru eftirfarandi:
- Tekjur í sjávarútvegi drógust saman um 25 milljarða króna eða 9% milli áranna 2015 og 2016. Tekjur lækkuðu hlutfallslega mest hjá sjávarútvegsfyrirtækjum með mestu aflaheimildirnar.
- EBITDA sjávarútvegsfyrirtækja lækkaði um 22% milli áranna 2015 og 2016. Sjávarútvegsfyrirtæki náðu þó að einhverju marki að vega upp neikvæða tekjuþróun með lækkun kostnaðar.
- Skuldastaða greinarinnar í heild þróaðist með jákvæðum hætti árið 2016 að því leyti að heildarskuldir lækkuðu og eiginfjárhlutfall hækkaði. Greiðslugeta versnaði hins vegar heldur þar sem skuldir sem hlutfall af EBITDA lækkuðu.
- Með hliðsjón af hreyfingu helstu hagstærða og útflutningsverðmætis sjávarafurða eru allar líkur á því að afkoma versni nokkuð á rekstrarárinu 2017. Þetta má m.a. rekja til óhagstæðrar þróunar ytri hagstærða. Verðlag sjávarafurða hefur lækkað verulega í íslenskum krónum og launavísitala hækkað töluvert. Lækkun olíuverðs hefur haft nokkuð jákvæð áhrif á afkomu ársins 2016, en á árinu 2017 hefur olíuverð tekið að hækka að nýju.
- Deloitte telur að EBITDA sjávarútvegsins geti árið 2017 hafa lækkað um 20-37% frá fyrra ári og nemi á bilinu 37 til 45 milljarðar króna. Gangi það eftir mun EBITDA hafa lækkað um 42-59% frá 2015 til 2017.
Skýrsla Deloitte um íslenskan sjávarútveg