fbpx
Sunnudagur 18.ágúst 2024
Eyjan

Hagsmunasamtök heimilanna höfða skaðabótamál vegna neytendalána

Trausti Salvar Kristjánsson
Mánudaginn 5. mars 2018 10:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mynd/Getty

Hagsmunasamtök heimilanna hafa höfðað skaðabótamál vegna verðtryggða neytendalána og vanrækslu á upplýsingaskyldu fjármálastofnana, um kostnað vegna verðtryggingar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum.

Samkvæmt tilkynningunni er málið nokkuð sérstakt, því sama hvernig fer, mun niðurstaðan verða Hagsmunasamtökum heimilanna í vil.

 „Aðeins þarf að fá úr því skorið hvort innleiðing Alþingis á þeim neytendarétti sem um ræðir í málinu hafi verið röng sem gerir Alþingi ábyrgt eða þá að dómur Hæstaréttar Íslands í máli nr. 243/2015 hafi verið rangur sem gerir Hæstarétt og dómskerfið ábyrgt,“

 

segir í tilkynningu.

 

Málið er höfðað vegna hins fyrrnefnda dóms Hæstaréttar Íslands þar sem reyndi á afleiðingar þess að við lántöku höfðu ekki verið veittar fullnægjandi upplýsingar um áhrif verðtryggingar á lánskostnað og árlega hlutfallstölu kostnaðar samkvæmt lögum um neytendalán. Þrátt fyrir að EFTA-dómstólinn teldi að taka yrði mið af áhrifum verðtryggingar við útreikning lánskostnaðar, ákvað Hæstiréttur Íslands hins vegar að túlka íslensk lög þveröfugt þannig að ekki hefði þurft að veita neinar upplýsingar um kostnað af völdum verðtryggingar.

 

Hvort sem um er að ræða ranga túlkun Hæstaréttar eða að íslensk lög hafi verið í beinni andstöðu við tilskipun EES um neytendalán, eru slík brot gegn EES reglum almennt skaðabótaskyld. Hefðu þær reglur sem um ræðir komist rétt til framkvæmda hefði átt að vera óheimilt að innheimta þann kostnað sem ekki var réttilega upplýst um. Tjón lántakenda er bein afleiðing þess að þeir hafi ekki notið þeirrar verndar sem í þessu átti að felast þegar á reyndi. Fyrir dómi er því krafist skaðabóta sem nema öllum aukakostnaði sem greiddur hefur verið vegna verðtryggingar viðkomandi láns.

 

Málarekstur þessi er beint framhald af dómsmáli sem var fyrst höfðað árið 2012 og hefur nú leiðst í þennan farveg. Markmið Hagsmunasamtaka heimilanna með þessum málarekstri hefur verið að ná fram fordæmisgefandi dómi um fulla leiðréttingu ólögmætrar verðtryggingar. Allar líkur eru á því að fordæmisgefandi dómur um þetta úrlausnarefni geti haft verulega þýðingu fyrir neytendur sem tóku almenn neytendalán frá og með árinu 1994 og þar með talin húsnæðislán frá og með 2001.

 

Þar sem mál þetta hefur nú verið höfðað fyrir héraðsdómi má búast við því að í kjölfarið muni það hljóta hefðbundna málsmeðferð í dómskerfinu. Hagsmunasamtök heimilanna munu eins og hingað til senda frá sér tilkynningar um framvindu málsins eftir því sem tilefni gefst til á hverju stigi og leitast sérstaklega við að halda félagsmönnum sínum upplýstum um framgang mála.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Nú er upplýsingum um kosningabaráttu Trump lekið í gríð og erg – Er hann í vanda?

Nú er upplýsingum um kosningabaráttu Trump lekið í gríð og erg – Er hann í vanda?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Óreiðuhagstjórn hrekur ungt fólk úr landi – tvær þjóðir í landinu

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Óreiðuhagstjórn hrekur ungt fólk úr landi – tvær þjóðir í landinu