Tómas Ellert Tómasson, verkfræðingur og verkefnastjóri á skrifstofu framkvæmda og viðhalds hjá Reykjavíkurborg, mun leiða lista Miðflokksins í Árborg í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Tómas Ellert er fæddur 1970 og er byggingarverkfræðingur að mennt.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Miðflokknum.
Þar segir einnig:
Miðflokknum í Árborg er mikill fengur af því að fá Tómas Ellert til liðs við sig en hann er gjörkunnugur bæjarstjórnarmálum og starfaði hann sem varabæjarfulltrúi í Árborg 2010-2014 ásamt því að vera stjórnarformaður Leigubústaða Árborgar, varaformaður skipulags- og byggingarnefndar, í stjórn framkvæmda- og veitusviðs, formaður starfshóps Sveitarfélagsins Árborgar vegna uppbyggingu íþróttamannvirkja fyrir unglingalandsmót UMFÍ 2012 og landsmót UMFÍ 2013 og fulltrúi Sveitarfélagsins Árborgar í samgöngunefnd SASS (Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga).
Tómas Ellert var kosningastjóri Miðflokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar s.l. haust, hann er jafnframt stofnandi og ritstjóri Forsíðufrétta, grasrótarvefmiðils Miðflokksins – www.forsidufrettir.net.
Mótum framtíðina saman í Árborg
Miðflokkurinn er flokkur með djúpar rætur á miðju stjórnmálanna. Flokkur fyrir skynsamt fólk með skýra sýn á grundvallarmál samfélagsins. Miðflokkurinn er flokkur sem veitt getur stöðugleika og staðið vörð um hefðbundin grunngildi en um leið verið flokkur hugmyndaauðgi og framfara. Flokkur sem leitar til þeirra sem best þekkja til á hverju sviði og styður góðar hugmyndir sama hvaðan þær koma.
Sveitarfélagið Árborg hefur margvíslegum skyldum og hlutverkum að gegna gagnvart íbúum sínum. Þær skyldur helstar eru bundnar í lög og einnig gegnir sveitarfélagið mikilvægu samfélagslegu hlutverki með því að sinna hagsmunagæslu fyrir íbúana. Sveitarfélagið Árborg, á sem langfjölmennasta sveitarfélagið á Suðurlandi að vera sú rödd sem heyrist hvað hæst í er kemur að sameiginlegum hagsmunamálum fyrir íbúa svæðisins.
Miðflokkurinn í Árborg mun taka ofangreind meginhlutverk Sveitarfélagsins Árborgar mjög föstum tökum og sinna þeim af vandvirkni og alúð fyrir íbúa Árborgar.
Undirbúningur Miðflokksins í Árborg fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2018 er nú í fullum gangi og er málefnastarfið komið af stað. Megináherslur Miðflokksins í Árborg fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor verða eftirfarandi:
Þeir sem hafa áhuga að koma að framboðinu, frekari málefnavinnu , útfærslu á einstaka málefnum Miðflokksins í Árborg og taka þátt í að móta samfélagið í sveitarfélaginu á næsta kjörtímabili er bent á að hafa samband við undirritaðan eða Tómas Ellert [s. 853 8358 – tomasellert@midflokkurinn.is].
Selfossi, 4. mars 2018