fbpx
Sunnudagur 18.ágúst 2024
Eyjan

Hernaðarandstæðingar kæra Atlanta fyrir hergagnaflutninga

Trausti Salvar Kristjánsson
Föstudaginn 2. mars 2018 13:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kæran afhent

Samtök hernaðarandstæðinga lögðu í hádeginu í dag fram kæru á hendur flugfélaginu Atlanta vegna brota á lögum um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu.

Í kærunni er m.a.  vísað til umfjöllunar sjónvarpsþáttarins Kveiks þar sem fram kom að flugfélagið hefur á liðnum misserum sinnt flutningi á hergögnum til Sádí-Arabíu. Samtökin telja ljóst að leyfi opinberra aðila fríar flutningsaðila ekki ábyrgð og  telja ljóst að flugfélagið Atlanta hafi mátt ætla að þjónusta þess bryti í bága við skuldbindingar Íslands og íslensk lög. 

Samtökin minna á að heimild er í lögum fyrir upptöku á hlutum sem hafa verið notaðir til brots og telja að lögregla hljóti að íhuga hvort haldleggja skuli flutningavélar félagsins sem og fjármuni sem ætla má að fyrirtækinu hafi áskotnast vegna viðskiptanna.

Hér að neðan má lesa kæruna sem lögð var fram:

Reykjavík 2. mars 2018
Efni bréfs: Kæra til lögreglu á hendur Flugfélaginu Atlanta vegna brota á
lögum nr. 1173/2010
Samtök hernaðarandstæðinga (kt. 4512770579) leggja fram kæru á hendur
Flugfélaginu Atlanta (kt. 6503871639) vegna brota á lögun nr. 1173/2010 um
eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu.
Vísað er í umfjöllun sjónvarpsþáttarins Kveiks, sem var á dagskrá RÚV
þriðjudagskvöldið 27. febrúar sl. Þar kom fram að flugfélagið hefur á liðnum
misserum sinnt flutningi á hergögnum til Sádi-Arabíu sem verulegar líkur máttu
teljast á að yrðu notuð í hernaði í Jemen og Sýrlandi. Flutningarnir stönguðust
því á við alþjóðlega sáttmála sem Ísland er aðili að.
Samtök hernaðarandstæðinga telja augljóst að flutningarnir hafi verið brot á
lögum nr. 1173/2010, en í fyrstu grein þeirra segir: „Markmið laga þessara er að
auka alþjóðaöryggi og tryggja virðingu fyrir mannréttindum, í samræmi við
alþjóðlegar skuldbindingar, með því meðal annars að hafa eftirlit með, banna og/eða
leyfisbinda útflutning á hlutum sem má nota, með beinum eða óbeinum hætti, til
hryðjuverka, bælingar eða í hernaðarlegum tilgangi, svo og hafa eftirlit með þjónustu
og fjárfestingum þeim tengdum.“
Í 6. grein sömu laga kemur skýrt fram að leyfi opinberra aðila fyrir (í þessu
tilviki) flutningum á vopnum, fríar flutningsaðila ekki ábyrgð, en þar segir: „Nú
hefur almennt innflutnings-, útflutnings-, þjónustu- eða fjárfestingaleyfi verið gefið út
en leyfishafa verður kunnugt um eða hann má ætla, vegna síðari atburða eða af
öðrum ástæðum, að útflutningurinn, innflutningurinn, þjónustan eða fjárfestingin
brjóti í bága við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands og er honum þá óheimilt að nota
leyfið.“
Samtök hernaðarandstæðinga telja ljóst að Flugfélagið Atlanta hafi mátt ætla að
þjónusta þess bryti í bága við skuldbindingar Íslands. Félaginu hafi því verið
óheimilt að nota leyfið.
Jafnframt minna Samtök hernaðarandstæðinga á 5. mgr. 13. gr. laga nr. 58/2010
sem heimila upptöku á hlutum sem hafa verið notaðir til brots, hafa orðið til við
brot eða með öðrum hætti tengjast framningu brots. Þá má gera upptækan
ávinning af broti eða fjárhæð sem svarar til hans í heild eða hluta. Fyllsta ástæða
hlýtur að vera fyrir lögreglu að íhuga hvort haldleggja skuli flutningavélar
félagsins sem og fjármuni sem ætla má að fyrirtækinu hafi áskotnast vegna
viðskiptanna.

Fyrir hönd Samtaka hernaðarandstæðinga,
Auður Lilja Erlingsdóttir, formaður

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Nú er upplýsingum um kosningabaráttu Trump lekið í gríð og erg – Er hann í vanda?

Nú er upplýsingum um kosningabaráttu Trump lekið í gríð og erg – Er hann í vanda?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Óreiðuhagstjórn hrekur ungt fólk úr landi – tvær þjóðir í landinu

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Óreiðuhagstjórn hrekur ungt fólk úr landi – tvær þjóðir í landinu