fbpx
Sunnudagur 18.ágúst 2024
Eyjan

Útgjöld heimila haldast stöðug 2011–2016 í mælingum Hagstofunnar

Trausti Salvar Kristjánsson
Föstudaginn 2. mars 2018 09:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mynd/Getty

Gefin hafa verið út Hagtíðindi með niðurstöðum úr rannsókn á útgjöldum heimilanna árin 2011–2016. Niðurstöðunum er skipt upp í þrjú tímabil, í fyrsta lagi 2011–2014 á verðlagi ársins 2014, í öðru lagi 2012–2015 (verðlag 2015) og í þriðja lagi 2013–2016 (verðlag 2016). Niðurstöður eru sundurliðaðar eftir búsetu, heimilisgerð, tekju- og útgjaldahópum. Heildarniðurstöður eru bornar saman við útgjaldarannsóknir fyrri ára. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Meðalútgjöld heimilanna mældust nokkuð stöðug yfir tímabilið 2011–2016 metið á föstu verðlagi. Meðalneysluútgjöld á heimili árin 2013–2016 voru um 520 þúsund krónur á mánuði en mældust um 558 þúsund krónur á mánuði á tímabilinu 2011–2014. Útgjöld meðalheimilis til matarinnkaupa lækkuðu á tímabilinu rétt um 20% og voru orðin 13,1% heildarútgjalda í niðurstöðum áranna 2013–2016 eftir að hafa mælst 15,6% á tímabilinu 2012–2015. Á móti kemur að hlutfallslegt vægi annarra neysluflokka hækkaði, svo sem ferðir og flutningar, tómstundir og menning. Á heimili búa á milli 2,7–2,9 einstaklingar að meðaltali.

 

Niðurstöður tímabilsins 2013–2016 sýndu að útgjöld tiltekinna neysluflokka voru lítið eitt mismunandi milli búsetusvæða að undanskildum húsnæðisliðnum.

Ráðstöfunartekjur meðalheimilis í rannsókninni 2013–2016 voru 857 þúsund krónur á mánuði (verðlag 2016). Ráðstöfunartekjur allra hópa voru hærri en útgjöld þeirra en neysluútgjöldin voru að meðaltali 60,7% af ráðstöfunartekjum. Í úrtaki áranna 2013–2016 voru 4.850 heimili, 1.678 þeirra tók þátt í rannsókninni og var svörun 34,6%.

Rannsókn á útgjöldum heimilanna er gefin út í þremur heftum Hagtíðinda þar sem niðurstöður fjögurra ára eru dregnar saman. Lengd tímabils hverrar samantektar markast af því að úrtak hvers árs er lítið og því er skeytt saman niðurstöðum nokkurra ára. Fyrri niðurstöður miðast við meðaltal útgjalda á þriggja ára tímabili. Hér er því einnig brugðist við því að árin 2013–2015 var svörun í rannsókninni nokkuð lægri en árin á undan. Framkvæmd rannsóknarinnar var endurbætt til að draga úr svarbyrði þátttakenda og einfalda úrvinnslu, og hefur það skilað sér í bættri svörun.
Rannsókn á útgjöldum heimilanna 2011-2014 – Hagtíðindi
Rannsókn á útgjöldum heimilanna 2012-2015 – Hagtíðindi
Rannsókn á útgjöldum heimilanna 2013-2016 – Hagtíðindi

Talnaefni

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólga vegna gjaldskráa á Akureyri – „Ef þeir taka ekki þátt í þessu gefur það auga leið að samningar munu losna“

Ólga vegna gjaldskráa á Akureyri – „Ef þeir taka ekki þátt í þessu gefur það auga leið að samningar munu losna“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir Sjálfstæðisflokkinn ætla að sprengja ríkistjórnina og láta kjósa með skömmum fyrirvara

Segir Sjálfstæðisflokkinn ætla að sprengja ríkistjórnina og láta kjósa með skömmum fyrirvara
Eyjan
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Ekki nefna vextina!

Thomas Möller skrifar: Ekki nefna vextina!
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Íslamskir ofsatrúarmenn

Björn Jón skrifar: Íslamskir ofsatrúarmenn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Grátandi ferðaþjónusta

Óttar Guðmundsson skrifar: Grátandi ferðaþjónusta
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hart sótt að Áslaugu Örnu – „Það er ykkar Kleppur að díla við“

Hart sótt að Áslaugu Örnu – „Það er ykkar Kleppur að díla við“