fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Eyjan

Meirihlutinn heldur – Samfylking stærst flokka

Trausti Salvar Kristjánsson
Fimmtudaginn 29. mars 2018 08:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eyþór og Dagur                                                Samsett mynd/DV

Samkvæmt nýrri könnun sem Félagsvísindastofnun vann fyrir Morgunblaðið um fylgi framboða fyrir komandi borgarstjórnarkosningar, er Samfylkingin stærsti flokkur landsins.

Samfylkingin mælist með 31,7 prósent fylgi sem gerir átta borgarfulltrúa. Sjálfstæðisflokkurinn kemur þar næstur á eftir með 27 prósent og sjö fulltrúa, en Vinstri grænir fá 12.8 prósent og þrjá fulltrúa.

 

Píratar mælast með 7.7 % og tvo fulltrúa, Viðreisn 7.3% og tvo fulltrúa, Miðflokkurinn fær 5% og einn fulltrúa.

Flokkur fólksins fær 3.1% og engan fulltrúa og Framsókn fær 2.7% og engan fulltrúa.

Fylgi við tvo stærstu flokkanna er nokkuð hverfaskipt, Samfylking fær meiri stuðning í vesturhluta borgarinnar, meðan Sjálfstæðisflokkurinn sækir fylgi sitt mest til úthverfa.

 

„Sjálfstæðisflokkurinn vill hverfa aftur til gamla tímans og hefur kynnt hugmyndir um þróun borgarinnar sem fólk áttar sig betur og betur á að verði vondar fyrir umferðina, þá sérstaklega þessar stóru stofnbrautir,“

segir Dagur B. Eggertsson í Morgunblaðinu.

Eyþór Arnalds segir fólk vilja breytingar:

„Ég skynja það að þeir sem segjast styðja meirihlutaflokkana eru ekki sérstaklega stoltir af verkum
þeirra. Ég tel að það muni skipta máli. Fólk velji breytingar, þegar upp er staðið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur