fbpx
Mánudagur 19.ágúst 2024
Eyjan

Þurfa að greiða 4.8 milljónir í skaðabætur vegna ólögmatrar uppsagnar

Trausti Salvar Kristjánsson
Miðvikudaginn 21. febrúar 2018 16:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann, SÁÁ, þurfa að greiða fyrrverandi starfsmanni
og félagsmanni í SFR – stéttarfélagi í almannaþjónustu, alls 4,8 milljónir króna í skaðabætur,
miskabætur og lögfræðikostnað vegna ólögmætrar uppsagnar samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur,
sem kveðinn var upp í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SFR.

Starfsstöð starfsmannsins var á Akureyri en honum var tilkynnt að til stæði að færa hann til í
starfi á starfsstöð SÁÁ í Reykjavík án rökstuðnings. Héraðsdómur féllst á að flutningur starfs
milli landshluta jafngildi uppsögn og dæmdi SÁÁ til að greiða starfsmanninum bætur vegna
hennar.

 

Málið átti sér nokkurn aðdraganda. Starfsmaðurinn hóf störf hjá SÁÁ árið 2005 en flutti sig á
starfsstöð samtakanna á Akureyri árið 2008 þegar hann tók við starfi dagskrárstjóra
göngudeildar. Starfsmanninum var tilkynnt bréflega í október 2016 að til stæði að veita
honum áminningu vegna starfa hans fyrir barnaverndarnefnd, sem ekki voru talin samrýmast
störfum hans fyrir SÁÁ. Starfsmaðurinn leitaði þegar til síns stéttarfélags, SFR, sem vann að
málinu með honum í kjölfarið.

SFR -stéttarfélag í almannaþjónustu hélt því fram að engin haldbær rök væru fyrir
áminningu sem varð til þess að SÁÁ hætti við þá aðgerð. Þess í stað fékk starfsmaðurinn
bréflega tilkynningu um það í lok október 2016 að til stæði að færa hann til í starfi og að hann
ætti að hefja störf við starfsstöð SÁÁ í Reykjavík 1. febrúar og að hann yrði í launuðu leyfi
þangað til. Þetta taldi starfsmaðurinn jafngilda uppsögn, enda kom skýrt fram í
ráðningarsamningi að starf hans færi fram á Akureyri, þar sem hann átti fjölskyldu og heimili.
Starfsmaðurinn krafði SÁÁ um greiðslu skaðabóta og einnig um greiðslu miskabóta. Hann
taldi ákvörðun um að færa hann til í starfi koma í beinu framhaldi af hótunum um áminningu
og vera tilraun atvinnurekandans til að losna við sig úr starfi.
Of mikil breyting

Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur kemur fram að SÁÁ hafi hafnað öllum kröfum
starfsmannsins, enda sé heimilt að færa starfsmenn milli starfsstöðva. Á þessi rök féllst
héraðsdómur ekki. Í dómnum er bent á að slíkar tilfærslur verði að koma til vegna
skipulagsbreytinga og ekkert bendi til þess að um neinar skipulagsbreytingar hafi verið að
ræða.

„Með vísan til þess sem rakið hefur verið verður ekki fallist á það með stefnda [SÁÁ] að
frammangreind ákvæði kjarasamningsins eða ákvæði ráðningarsamningsins frá 2008 hafi
heimilað honum að færa stefnanda [starfsmanninn] á aðra starfsstöð. Slík breyting er of mikil
til að fallist verði á það að um sé að ræða breytingu sem heimil sé á grundvelli
ráðningarsamningsins sem breyting á starfssviði, auk þess sem líta verður svo á, með
hliðsjón af orðalagi samningsins, að staðsetning starfsstöðvar sé hluti af ráðningarkjörum,“

segir um þetta í dómi héraðsdóms.

Ólögmæt meingerð gegn persónu og æru
SÁÁ var dæmt til að greiða starfsmanninum 3 milljónir króna í skaðabætur vegna ólögmætrar
uppsagnar. Þá fær starfsmaðurinn 300 þúsund krónur í miskabætur frá
sjálfseignarstofnuninni þar sem dómurinn telur uppsögnina hafa falið í sér ólögmæta
meingerð gegn persónu starfsmannsins og æru hans. Við upphæðirnar leggjast vextir og
dráttarvextir. SÁÁ þarf einnig að greiða málskostnað, alls 1,5 milljónir króna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvað á að gera við skakka heildarmynd?

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvað á að gera við skakka heildarmynd?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólga vegna gjaldskráa á Akureyri – „Ef þeir taka ekki þátt í þessu gefur það auga leið að samningar munu losna“

Ólga vegna gjaldskráa á Akureyri – „Ef þeir taka ekki þátt í þessu gefur það auga leið að samningar munu losna“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Mörg ríki hanga milli vonar og ótta á húninum í Brussel

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Mörg ríki hanga milli vonar og ótta á húninum í Brussel
Eyjan
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Ekki nefna vextina!

Thomas Möller skrifar: Ekki nefna vextina!
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór sýnir myndir sem slá vopnin úr höndum ráðherra – „Eignarhald kennir ekki virðingu“

Ragnar Þór sýnir myndir sem slá vopnin úr höndum ráðherra – „Eignarhald kennir ekki virðingu“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Grátandi ferðaþjónusta

Óttar Guðmundsson skrifar: Grátandi ferðaþjónusta