fbpx
Mánudagur 19.ágúst 2024
Eyjan

Björn bölsótast út í Helgu Völu og Helga Hrafn vegna vinnubragða á Alþingi

Trausti Salvar Kristjánsson
Mánudaginn 19. febrúar 2018 15:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Bjarnason

Björn Bjarnason, fyrrum ráðherra Sjálfstæðisflokksins, fjallar um vinnubrögð Alþingis í pistli á heimasíðu sinni. Tilefnið er ummæli Helgu Völu Helgadóttur, þingmanns Samfylkingarinnar í Fréttablaðinu í dag, þar sem hún segir að lagasetning á Íslandi sé oft „óttalegt fúsk sem unnin er í fljótheitum“ og ummæli Helga Hrafns, þingmanns Pírata, um að erfitt sé að sjá fyrir hvenær málum ljúki og því erfitt að setja sig inn í stór og viðamikil mál á stuttum tíma.

Björn, sem sat á þingi frá 1991-2009, virðist taka ummælin til sín, því hann finnur Helgu Völu og Helga Hrafni flest til foráttu í pistlinum.

„Helga Vala settist á alþingi eftir kosningarnar í lok október 2017 og með komu hennar á þingið og formennsku í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd ætti fúskinu að ljúka. Það sem af er formannsferli hennar í nefndinni lofar ekki góðu um að þar leggi menn sig endilega fram um að stunda gæðaeftirlit með lagasetningu, formaðurinn hefur sýnt mestan áhuga á að eltast við dómsmálaráðherrann í von um að koma höggi á hann,“

segir Björn um Helgu. Í Fréttablaðinu segir að þingmennirnir tveir telji að breytingar á líftíma frumvarpa, innleiðing tölvutækni við vinnslu þingskjala auk auðkenningar á breytingatillögum, gætu leyst úr vandanum.

Þessu er Björn ósammála og segir þingmenn einfaldlega þurfa að breyta vinnubrögðum sínum:

„Helgi Hrafn lagði árið 2015 fram þingsályktunartillögu um tölvutækt snið þingskjala og auðkenningu breytingartillagna. Hvaða heila brú er í skoðun Helga Hrafns? Varla skapar tölvutæknin „fyrirsjáanleika“ í störfum þingsins. Honum ráða þingmenn sjálfir. Þeir vilja ekki taka sér til fyrirmyndar reglur og hefðir í þingum annars staðar um skipulag umræðna og þar með tíma þingmanna. Litið er á „hálftíma hálfvitanna“ sem heilaga stund, hana eigi frekar að lengja en stytta. Hvorki líftími frumvarpa né aukin notkun á tölvum kemur í stað vandaðra vinnubragða þingmanna sjálfra. Skorti þingmenn tíma til að fara gaumgæfilega yfir frumvörp í nefndum verða þeir að skapa sér hann með því að breyta eigin vinnubrögðum.“

Björn rifjar síðan upp hvernig hlutirnir voru gerðir í gamla daga:

„Þegar ég settist á þing fyrir rúmum aldarfjórðungi tíðkaðist að lagafrumvörp sem voru til meðferðar í þingnefnd voru samlesin upphátt af nefndarmönnum með höfund frumvarpsins eða annan sérfróðan mann utan þings á fundinum. Þar gafst þingmönnum færi á að spyrja um og fá svör við spurningum um álitamál. Að lokinni yfirferðinni sem gat tekið marga fundi ef um löng lagafrumvörp var að ræða hittust nefndarmenn til að „taka mál úr nefndinni“ eins og sagt var og þar skildi leiðir milli meiri og minni hluta ef svo bar undir. Hvort þetta tryggði betri lög eða ekki skal ekki fullyrt. Hitt er víst að nefndarmenn voru vissir í sinni sök, ef svo má orða það, þeir höfðu farið gaumgæfilega yfir hverja grein frumvarpsins og vissu um hvað það snerist. Afstöðu sína mótuðu þeir í samvinnu við þingflokk sinn og viðkomandi ráðherra ef svo bar undir. Hafa þessir starfshættir lagst af? Ég veit það ekki. Hefði einhver þingmaður kennt gömlu aðferðina við „fúsk“ hefðu félagar hans tekið hann á beinið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu: Ekki verið að leggja af samræmd próf heldur stórauka vægi þeirra og virkni

Forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu: Ekki verið að leggja af samræmd próf heldur stórauka vægi þeirra og virkni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fjártæknifyrirtækið YAY aðstoðar við dreifingu bótagreiðslna í Kanada

Fjártæknifyrirtækið YAY aðstoðar við dreifingu bótagreiðslna í Kanada
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Vilhjálmi brugðið út af tregðu til gjaldskrárlækkanna – „Ég trúi ekki að sveitarstjórnir sumra sveitafélaga ætli og vogi sér að svíkja launafólk með því að standa ekki við gefin loforð“

Ole Anton BIeltvedt skrifar: Aðferðafræði fáránleikans – Húsnæðiskostnaður hækkar vísitölu, sem hækkar verðbólgu og vexti – afleiðingin: of dýrt að byggja til að lækka húsnæðiskostnað!

Ole Anton BIeltvedt skrifar: Aðferðafræði fáránleikans – Húsnæðiskostnaður hækkar vísitölu, sem hækkar verðbólgu og vexti – afleiðingin: of dýrt að byggja til að lækka húsnæðiskostnað!
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Morgunblaðsmenn orðnir þreyttir á afskiptum ritstjórans aldna

Orðið á götunni: Morgunblaðsmenn orðnir þreyttir á afskiptum ritstjórans aldna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Össur hæstánægður með sérfræðinga RÚV – „Af minni eigin sjálfumgleði minntu þau á sjálfan mig þegar ég fæ að tala um urriða!“

Össur hæstánægður með sérfræðinga RÚV – „Af minni eigin sjálfumgleði minntu þau á sjálfan mig þegar ég fæ að tala um urriða!“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Baráttan um hægra fylgið

Sigmundur Ernir skrifar: Baráttan um hægra fylgið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björn segir málflutning Ögmundar ömurlegan – „Vladimír Pútín Rússlandsforseti gaf fyrirmælin um tilefnislausa og ólögmæta innrás í Úkraínu“

Björn segir málflutning Ögmundar ömurlegan – „Vladimír Pútín Rússlandsforseti gaf fyrirmælin um tilefnislausa og ólögmæta innrás í Úkraínu“