fbpx
Miðvikudagur 27.nóvember 2024
Eyjan

Launþegum fjölgaði í fyrra

Trausti Salvar Kristjánsson
Þriðjudaginn 13. febrúar 2018 10:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mynd/DV

Árið 2017, voru að jafnaði 17.599 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 658 (3,9%) frá árinu 2016. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 188.600 einstaklingum laun og fjölgaði þeim um 8.500 (4,7%) frá fyrra ári. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Launþegum fjölgar milli ára í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Launþegum fækkar í sjávarútvegi.

Í desember 2017 voru 2.744 launagreiðendur og um 13.100 launþegar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og hafði launþegum fjölgað um 1.700 (15%) samanborið við desember 2016. Í desember voru 1.803 launagreiðendur og um 25.900 launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu og hafði launþegum fjölgað um 1.600 (6%) á einu ári. Á sama tímabili hefur launþegum í heild fjölgað um 7.500 (4%).

 

 

Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin.

Tafla 1: Fjöldi launagreiðenda og launþega í nokkrum atvinnugreinum¹
Launagreiðendur Launþegar í desember
des. 2017 2016 2017 Breyting %
Allar atvinnugreinar   18.138 182.600 190.100 7.500 4
Sjávarútvegur (ÍSAT nr. 031, 102) 502 9.500 9.200 -300 -4
Framleiðsla án fiskvinnslu (ÍSAT nr. 10-33 án 102) 1.077 17.100 17.100 0 0
Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (ÍSAT nr. 41-43) 2.744 11.400 13.100 1.700 15
Sala, viðgerðir og viðhald á vélknúnum ökutækjum og tengivögnum (ÍSAT nr. 45) 503 3.400 3.500 200 5
Heildverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum (ÍSAT nr. 46) 1.029 9.000 9.100 100 1
Smásöluverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum (ÍSAT nr. 47) 888 15.300 15.900 600 4
Fræðslustarfsemi og opinber stjórnsýsla (ÍSAT nr. 84-85) 586 40.700 42.100 1.400 3
Heilbrigðis- og umönnunarþjónusta (ÍSAT nr. 86-88) 1.147 16.000 17.300 1.300 8
Einkennandi greinar ferðaþjónustu (ÍSAT nr. 491, 4932, 4939, 501, 503, 511, 551-553, 561, 563, 771, 7721, 79) 1.803 24.300 25.900 1.600 6
Tækni- og hugverkaiðnaður (ÍSAT nr. 20, 254, 26-30, 325, 53, 58, 60-63, 72) 950 13.300 13.600 300 2
Skapandi greinar (ÍSAT nr. 3212, 58-60, 6201-6202, 7021, 7111, 731, 741-743, 8552, 90, 9101-9102) 1.690 9.400 9.300 -100 -2
¹ Nánari lýsing á þessum atvinnugreinaflokkum er að finna í lýsigögnum 

Endurskoðun hagtalna
Tölurnar sem hér um ræðir eru bráðabirgðatölur. Þar sem byggt er á staðgreiðslugögnum getur verið vanmat í nýjustu tölum þegar launagreiðendur skila ekki inn upplýsingum tímanlega. Meðal annarra skekkjuvalda má nefna orlofsgreiðslur til fyrrverandi starfsmanna. Þegar nýjar tölur eru birtar verða jafnframt birtar endurskoðaðar tölur fyrir fyrri tímabil. Nánari lýsingu á skekkjuvöldum, áhrifum þeirra og endurskoðun birtra talna má finna í lýsigögnum og í talnaefni um endurskoðun hagtalna.

Áður birtar tölur hafa verið endurskoðaðar, þ.e. tekið tillit til nýrra upplýsinga um launagreiðslur og nýjustu upplýsinga um atvinnugreinaflokkun.

Heildarfjöldi launagreiðenda í október 2017 telst nú vera 17.892 og heildarfjöldi launþega 188.300. Fjöldi launþega jókst um 7.900 (4,4 %) frá október 2016 til október 2017.

Þegar fréttatilkynning var gefin út í desember 2017 töldust vera 17.335 launagreiðendur og 186.900 launþegar í október 2017. Fjöldi launþega var þá talinn hafa aukist um 6.500 (3,6%) frá október 2016 til október 2017.

Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja. Yfirlitið byggist á skattframtölum fyrir tekjuárin 2002–2016 og gefur ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.

Hagstofa Íslands framkvæmir samfellda vinnumarkaðsrannsókn (VMR) allt árið um kring og birtir helstu niðurstöður (atvinnuþátttöku, fjölda starfandi, atvinnuleysi o.fl.) mánaðarlega og ítarlegri sundurliðun (s.s. starfshlutfall og vinnutíma eftir atvinnugreinum) árlega. Í VMR eru einnig upplýsingar um þá sem eru sjálfstætt starfandi og aðeins eru taldir með þeir sem eru, skráðir í Þjóðskrá og með fasta búsetu á Íslandi. Því er eðlilegt að tölur í þessari frétt séu ekki nákvæmlega þær sömu og í VMR. Tölum um fjölda launagreiðenda og launþega er fyrst og fremst ætlað að sýna þróun til skamms tíma og sveiflur innan árs.

Talnaefni
Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Allar atvinnugreinar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Gaf Díegó í jólagjöf

Nýlegt

Bellingham valinn bestur
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Arnar Þór Jónsson: Það er siðrof á íslenskum fjármálamarkaði – kannski þarf að setja lög á Seðlabankann

Arnar Þór Jónsson: Það er siðrof á íslenskum fjármálamarkaði – kannski þarf að setja lög á Seðlabankann
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Sigurður Ingi ræðst á Bjarna Ben – „Þegar ölið er af könnunni er vináttan úti“

Orðið á götunni: Sigurður Ingi ræðst á Bjarna Ben – „Þegar ölið er af könnunni er vináttan úti“