Gunnar Kristinn Þórðarson, einn af helstu stuðningsmönnum Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, segir á Facebook síðu sinni í gær að Miðflokksmenn væru „brjálaðir í framheilanum“ ef þeir bjóða ekki Sveini Hirti Guðfinnssyni 1.-.3. sætið í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.
Sveinn Hjörtur er fyrrverandi formaður Framsóknafélags Reykjavíkur, en sagði sig úr Framsókn í september. Þá var hann aðalmaður Framsóknar og flugvallarvina í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar. Sveinn hefur lengi verið einn helsti stuðningsmaður Sigmundar Davíðs og einn sá ötulasti við stofnun Miðflokksins.
Líflegar umræður hafa skapast í spjallþræðinum við færslu Gunnars. Flestar bera þær lof á manngerð Sveins Hjartar og því kemur athugasemd Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, óháðs borgarfulltrúa en áður samherja Sveins í Framsókn og flugvallarvinum, sem þruma úr heiðskýru lofti.
Sveinbjörg sakar Svein um iðjuleysi og að þiggja enn laun sem Framsóknarmaður þó svo hann sé að íhuga framboð fyrir annan flokk:
„Ekki hefur komið mikið frá honum er hann sat í mannréttindanefnd eða innkauparáði fyrir Framsókn og flugvallarvini í borginni. En hann situr líklega enn fyrir Framsókn og þiggur þaðan laun á meðan hann býður sig fram fyrir annan lista. Frekar ótrúverðugt verð ég að segja.“
Sveinn Hjörtur lætur þetta þó ekki á sig fá og svarar fyrir sig:
„Ég þakka stuðninginn en hef ekkert ákveðið með framboð. Hitt er annað mál að fyrsta pólitíska drullukastið kom úr stíunni hjá fyrrum flokksfélaga mínum, Sveinbjörgu Birnu. Það mátti svo sem eiga von á því að manneskjan sem engan veginn var hægt að vinna með, svaraði sjaldan skilaboðum, setti sig sjaldan í málin, og vann sem ein í heiminum, borgarfulltrúinn sem náði engum afrekum á ferli sínum, en þakka má öllum öðrum en henni Sveinbjörgu fyrir það við höfum náð að gera það sem þó var gert. Ótal mál og tillögur voru lagðar fram af öðrum en Sveinbjörgu Birnu, eða unnar af öðrum en henni. Að lokum er ég fulltrúi Flugvallarvina og legg fram tillögur og bókanir í þeirra nafni. Augljóst er að Sveinbjörg er ósátt við pólitíska píslagöngu sína og ræðst á mig hér með ótrúlegum málflutningi.“