fbpx
Miðvikudagur 27.nóvember 2024
Eyjan

Gjaldþrotum fækkaði um 27% árið 2017

Trausti Salvar Kristjánsson
Miðvikudaginn 7. febrúar 2018 17:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mynd/Getty

Gjaldþrotabeiðnum fyrirtækja árið 2017 fækkaði um 27% frá fyrra ári. Alls voru 747 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á árinu, borið saman við 1.030 árið 2016. Árið 2017 fækkaði gjaldþrotum hvað mest frá fyrra ári í fjármála- og vátryggingastarfsemi, úr 94 í 48 (49%), og í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum, úr 203 í 137 (33%). Gjaldþrotum fækkaði í nánast öllum helstu atvinnugreinabálkum frá fyrra ári, nema í flutningum og geymslu þar sem þeim fjölgaði úr 22 í 28 (27%).  Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar í dag.Ef skipting gjaldþrota árið 2017 er skoðuð eftir landshlutum sést að fækkun milli áranna 2016 og 2017 er fyrst og fremst vegna fækkunar gjaldþrotabeiðna á höfuðborgarsvæðinu (úr 877 í 594; 33%), en ef aðrir landshlutar eru teknir saman fjölgaði gjaldþrotum þar úr 149 í 154 (3%).

 

Árið 2017 fækkaði nýskráningum einkahlutafélaga um 3% frá fyrra ári, en alls voru 2.577 ný einkahlutafélög skráð á árinu. Nýskráningum fækkaði m.a. milli ára í leigustarfsemi og ýmissi sérhæfðri þjónustu um 23% (úr 272 í 209), og í landbúnaði, skógrækt og fiskveiðum um 39% (úr 92 í 56). Nýskráningum fjölgaði mest í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, úr 346 í 417, eða um 21% frá fyrra ári.Ef skoðuð er skipting á nýskráningum einkahlutafélaga og hlutafélaga milli landshluta árið 2017 sést að fækkunin milli ára var mest á höfuðborgarsvæðinu þar sem nýskráningar fóru úr 2.019 í 1.926 (5%), en tekið saman fyrir aðra landshluta var fjöldi nýskráninga nánast óbreyttur milli ára, fór úr 652 í 654.

 

 

 

 

 

 

Hagstofa Íslands mun hér eftir einungis birta fréttir um nýskráningar og gjaldþrot einu sinni á ári, en veftöflur um nýskráningar og gjaldþrot eftir atvinnugreinum verða áfram uppfærðar mánaðarlega.

Nýskráningar og gjaldþrot
4. ársfjórðungur Janúar–desember
2016 2017 % 2016 2017 %
Nýskráningar ehf.            
Alls 599 588 -2 2.666 2.577 -3
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar 15 15 0 92 56 -39
C Framleiðsla 18 24 33 104 100 -4
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð 69 82 19 346 417 21
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum 61 74 21 274 282 3
H Flutningar og geymsla 9 18 100 60 62 3
I Rekstur gististaða og veitingarekstur 36 23 -36 161 142 -12
J Upplýsingar og fjarskipti 38 27 -29 195 155 -21
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi 112 123 10 372 400 8
L Fasteignaviðskipti 97 76 -22 414 374 -10
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi 56 43 -23 235 219 -7
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta 60 41 -32 272 209 -23
Aðrar atvinnugreinar 28 42 50 141 161 14
Gjaldþrot            
Alls 238 272 14 1.030 747 -27
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar 10 11 10 29 29 0
C Framleiðsla 12 19 58 56 39 -30
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð 39 41 5 180 141 -22
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum 35 40 14 203 137 -33
H Flutningar og geymsla 1 9 800 22 28 27
I Rekstur gististaða og veitingarekstur 12 12 0 59 48 -19
J Upplýsingar og fjarskipti 12 24 100 63 44 -30
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi 27 17 -37 94 48 -49
L Fasteignaviðskipti 33 35 6 104 86 -17
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi 22 30 36 98 61 -38
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta 21 13 -38 58 39 -33
Aðrar atvinnugreinar 14 21 50 64 47 -27
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Umpólun Snorra?
Eyjan
Í gær

Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar: Sjúkrahúsið Vogur og kosningar

Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar: Sjúkrahúsið Vogur og kosningar
Eyjan
Í gær

Hver er hinn verðandi dómsmálaráðherra Trump?

Hver er hinn verðandi dómsmálaráðherra Trump?