Bæjarstjórnarminnihlutinn í Garðabæ, sem samanstendur af Bjartri framtíð, Samfylkingu og Lista fólksins, íhugar nú sameiginlegt framboð gegn Sjálfstæðisflokknum fyrir næstu sveitastjórnarkosningar í maí. Þetta kemur fram á Vísi.
Sjálfstæðisflokkurinn er með sjö fulltrúa í meirihluta, en Björt framtíð er með tvo, Samfylking einn og listi fólksins einn í minnihlutanum.
Bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar, Halldór J. Jörgenssen, segir við Vísi að slíkt framboð hafi einnig verið rætt fyrir síðustu kosningar:
„Þetta var komið ansi langt skilst mér fyrir fjórum árum síðan en svo slitnaði upp úr því á síðustu stundu.“
Samkvæmt Halldóri eru viðræðurnar ekki komnar langt en flokkarnir séu viljugir til viðræðna.
Garðabær hefur verið eitt sterkasta vígi Sjálfstæðisflokksins um árabil en Halldór segir það „heilbrigt fyrir alla“ að skipta út, allavega eitt kjörtímabil. Hann viðurkennir þó að flokkarnir séu ekkert svo „rosalega ósammála í Garðabæ“, í bæjarstjórninni sé „indælisfólk“ sem sé sammála um flest mál, en þetta snúist meira um hvernig eigi að vinna hlutina, ekki hvort.
Halldór vildi ekki gefa upp nein tímamörk varðandi ákvörðun samstarfs flokkanna, aðeins að það væri betra fyrr en seinna.