fbpx
Föstudagur 29.nóvember 2024
Eyjan

Aukið samstarf atvinnulífsins og utanríkisþjónustunnar

Trausti Salvar Kristjánsson
Föstudaginn 26. janúar 2018 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, undirrituðu í dag samstarfssamning sem felur í sér að stjórnvöld og atvinnulífið taka höndum saman um að efla þjónustu við útflutnings- og markaðsmál íslenskra fyrirtækja til að auka slagkraft þeirra á erlendum mörkuðum. Mun Bergþóra Halldórsdóttir, lögfræðingur og sérfræðingur á samkeppnishæfnisviði Samtaka atvinnulífsins, sinna hlutverki erindreka um samstarf atvinnulífsins og utanríkisþjónustunnar.
 
Samkvæmt samningnum munu Samtök atvinnulífsins veita ráðuneytinu ráðgjöf við undirbúning að stefnumótun og framkvæmd á vegum atvinnulífs og stjórnvalda um enn frekari eflingu stuðningskerfis við útflutning og markaðssetningu Íslands erlendis, auk annarrar ráðgjafar um mikilvæg hagsunamál sem varða íslenskt atvinnulíf. Byggist samstarfið meðal annars á tillögum sem lagðar eru fram í skýrslum á borð við Áfram Ísland og  „Utanríkisþjónusta til framtíðar – hagsmunagæsla í síbreytilegum heimi“. 
 
„Frá því að ég tók við embætti hefur áhersla verið lögð á að efla utanríkisviðskiptaþjónustuna. Þeim hugmyndum var komið blað í skýrslu um framtíð utanríkisþjónustunnar. Með þessu og öðrum aðgerðum erum við að hrinda hugmyndunum í framkvæmd,“

sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra. 

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði að auka þyrfti úflutningstekjur til að  viðhalda hagvexti:

 
„Til að viðhalda 3% hagvexti næstu 20 ár þarf að auka útflutningstekjur íslensku þjóðarinnar um 1000 milljarða króna. Íslenskir viðskiptahagsmunir i útlöndum spyrja ekki um rekstrarform. Samvinna atvinnulífsins og íslenskra stjórnarerindreka á erlendri grundu mun ráða miklu um hvort okkur tekst að skapa og nýta viðskiptatækifæri næstu áratuga til að standa undir vaxandi lífsgæðum til lengri tíma. Við vitum hvað við þurfum að gera til að standa undir hagvaxtarspám, við þurfum að auka útflutning um 1 milljarð króna í hverri einustu viku og það mun ekki gerast að sjálfu sér,“

 
Bergþóra nýr erindreki
 
Á grundvelli ofangreinds samnings mun Bergþóra Halldórsdóttir, lögfræðingur og sérfræðingur á samkeppnishæfnisviði Samtaka atvinnulífsins, sinna hlutverki erindreka um samstarf atvinnulífsins og utanríkisþjónustunnar.
 
Bergþóra er með meistaragráðu í alþjóðalögfræði og viðbótargráður bæði í alþjóðasamskiptum og frönsku. Í starfi sínu hjá Samtökum atvinnulífsins hefur hún sinnt alþjóðlegu samstarfi, sem fastafulltrúi samtakanna gagnvart BusinessEurope, Evrópusamtökum atvinnurekenda, sem fulltrúi atvinnurekenda í sendinefndum Íslands á þingi Alþjóðavinnumálastofnunar (ILO) og í norrænu samstarfi. Þá hefur Bergþóra sinnt margvíslegu samráði við innlend stjórnvöld fyrir hönd samtakanna þ.á m. við utanríkisráðuneytið á sviði EES-samningsins, Brexit og Iceland vörumerkjadeilunnar. Áður starfaði hún m.a. hjá Samkeppniseftirlitinu, fyrir sendinefnd Öryggis- og samvinnuráðs Evrópu (ÖSE) og hjá Embætti sérstaks saksóknara.  

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Húsnæðisvandinn er óleysanlegur – ef við lærum ekki lexíu Hrunsins

Húsnæðisvandinn er óleysanlegur – ef við lærum ekki lexíu Hrunsins
Eyjan
Í gær

Sigmundur vill íslenskan Elon Musk til að hagræða í ríkisrekstri – Nefnir tvo athafnamenn sem kæmu til greina

Sigmundur vill íslenskan Elon Musk til að hagræða í ríkisrekstri – Nefnir tvo athafnamenn sem kæmu til greina
Eyjan
Í gær

Kosningaspá DV þremur dögum fyrir kjördag – miðjustjórn í kortunum

Kosningaspá DV þremur dögum fyrir kjördag – miðjustjórn í kortunum
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Þau leynast víða vinstri slysin – enn á ný horfa sjálfstæðismenn til vinstri

Orðið á götunni: Þau leynast víða vinstri slysin – enn á ný horfa sjálfstæðismenn til vinstri
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Konurnar taka völdin

Orðið á götunni: Konurnar taka völdin
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Birgitta segir vont að Píratar hafi orðið að „diet Samfylkingu“ en nú sé þó farið að glitta aftur í pönkið

Birgitta segir vont að Píratar hafi orðið að „diet Samfylkingu“ en nú sé þó farið að glitta aftur í pönkið
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Óli Björn getur ekki horfst í augu við raunveruleikann – vinstristjórnarsamstarfið er dýrt og sorglegt

Orðið á götunni: Óli Björn getur ekki horfst í augu við raunveruleikann – vinstristjórnarsamstarfið er dýrt og sorglegt
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar – Auðmaður fer með fleipur

Björn Jón skrifar – Auðmaður fer með fleipur