Framboðslisti Sjálfstæðismanna í Kópavogi liggur nú fyrir eftir að tillaga uppstillingarnefndar um skipan listans var samþykkt í gærkvöldi, samkvæmt Morgunblaðinu.
Í nóvember var ákveðið að valið skyldi á framboðslista sem auglýst var eftir og gáfu 22 kost á sér. Það vekur athygli að efstu sjö sætin eru skipuð þeim sömu og fyrir síðustu kosningar.
Í fyrsta sæti er Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri.