Í þessu framúrstefnulega og sjúklega töff myndbandi sýnir Missy Elliot hver er upprunalegi töffarinn er. Henni tekst meistaralega að aðlagast nýjum stefnum tónlistarbransans og hljóma eins og hún hafi fundið upp á þeim. Missy Elliot leikstýrði myndbandinu við I’m Better með Dave Meyers. Dave leikstýrði einnig nokkrum af þekktustu myndböndum hennar, eins og Get Ur Freak On og Pass That Dutch. Það er spurning hvort að þetta lag sé hluti af nýrri plötu en það hefur ekki verið staðfest.
Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.