Foreldrar á Íslandi fögnuðu í dag þegar RÚV tilkynnti að það ætti að taka aftur upp sýningar á barnaþáttunum um Hvolpasveitina vinsælu. Þetta var gert vegna fjölda áskoranna en Hvolpasveitin er í miklu uppáhaldi á mörgum heimilum hér á landi. Á síðu KrakkaRÚV var sagt að foreldrar þyrftu því ekki lengur að örvænta yfir því að síðasti þátturinn væri að fara að detta úr úr sarpinum hjá RÚV. Tilkynning RÚV fékk ótrúlega góð viðbrögð og deildu margir foreldrar gleði sinni á samfélagsmiðlum í dag. Nýr þáttur verður sýndur á morgun.