Ef þú nenntir ekki að fylgjast með embættistöku Donald Trump í sjónvarpinu, engar áhyggjur, við skiljum þig. Það eru takmörk fyrir því hversu lengi maður getur legið yfir þunglyndislegu sjónvarpsefni. Hvað þá þegar um er að ræða grátlega atburði úr raunveruleikanum. En það er eitt myndband frá þessari athöfn sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Það birtist á YouTube í gær og hefur á sólarhring fengið átta milljónir áhorfa.
Snillingarnir á bakvið Bad Lip Reading ákváðu að reyna að lesa varir Donald Trump, Barack Obama, George Bush og fleiri sem voru viðstaddir embættistökuna. Í myndbandinu hafa þeir síðan talsett allt upp á nýtt – og það er svo lygilega vel gert að þú munt grenja úr hlátri.