Björk Guðmundsdóttir hefur átt ótrúlega athyglisverða spretti í búningum og klæðnaði. Óhætt er að segja að hún sé leiðandi afl í tísku og hafi verið það að minnsta kosti síðustu tvo áratugina.
Í þessu magnaða myndbandi sést hvernig hún hefur skartað ýmiss konar höfuðbúnaði og grímum þegar hún hefur komið fram opinberlega.
Sjón er sögu ríkari!
https://www.youtube.com/watch?v=U4CNtCAcKXg