Eins og flestir vita mun Donald Trump taka við sem forseti Bandaríkjanna þann 20.janúar og Obama fjölskyldan kveðjur Hvíta húsið. Michelle Obama var gestur í The Tonight Show hjá Jimmy Fallon í gær en þetta var sennilega hennar síðasta sjónvarpsviðtal sem forsetafrú. Snillingurinn Stevie Wonder heiðraði Michelle Obama með flutningi á Isn’t She Lovely og My Cherie Amour.
Stevie talaði ótrúlega fallega um forsetafrúna. Hann sagðist elska hana og kallaði hana meðal annars drottningu. Hann talaði sennilega fyrir hönd margra þegar hann sagði: „Þú verður alltaf forsetafrú í okkar huga“ en Michelle og Barrack Obama eiga sérstakan stað í hjörtum margra. Hér fyrir neðan má sjá atriðið sem Stevie flutti til heiðurs Michelle.
https://www.youtube.com/watch?v=VGB-hbAj-8w