Þokkagyðjan og fjöllistanornin Margrét Erla Maack er komin með kærasta! Ekki er að undra, segja eflaust einhverjir, enda hefur þessi sjarmadrottning hreinlega geislað að undanförnu.
Sá heppni er einstaklega glæsilegur og stæltur ungur maður sem að auki er 7 árum yngri en Margrét. Hann heitir Tómas Steindórsson og var kjörinn herra Helluskóli árið 2007.
Tómas starfar í félagsmiðstöðinni 105 og á Lyngási, auk þess sem hann er fyrirliði í 2. deildar körfuboltaliðinu Gnúpverjar.