Bleikt penninn, ofurbloggarinn og dýralæknaneminn Hrefna Líf Ólafsdóttir er orðin mamma. Fylgjendur hennar á Snapchat og Facebook hafa fengið að fylgjast með meðgöngunni – en Hrefna Líf er búsett í Barcelona þar sem hún stundar nám í dýralækningum.
Það var svo kl. 07 í morgun sem litli drengurinn hennar kom í heiminn með bráðakeisara. Hann var 12 merkur, eða 3 kíló, og þurfti að byrja lífið á vökudeild vegna dálítilla öndunarörðugleika. Hrefna er alveg rúmföst og hefur þess vegna ekki fengið að sjá litla drenginn sinn þegar þetta er ritað. Mamma hennar, og Siggi maðurinn hennar, eru hins vegar búin að sjá þennan fallega pilt.
Hrefna var svo sæt að leyfa okkur á Bleikt að færa lesendum þessar gleðifréttir.