Niðurstöður könnunar á vegum Gleeden sýndu að tíðni framhjáhalda nær hámarki snemma í janúar í kjölfar hátíðatímabilsins. Gleeden er stefnumótasíða fyrir einstaklinga sem leitast eftir að halda framhjá maka sínum. Það er einn tiltekinn dagur þar sem fólk sækir sérstaklega í það að halda framhjá og það er dagurinn í dag, 9. janúar.
Samkvæmt gögnum sem Gleeden hefur safnað síðustu ár, en síðan er með rúmlega þrjár milljónir notenda, þá virðist annar mánudagurinn eftir jól og áramót vera algengasti dagurinn fyrir fólk að halda framhjá makanum sínum. Mánudaginn 11. janúar 2016 jukust nýskráningar um rúmlega 320 prósent. Þessi framhjáhaldstilhneiging er svo stöðug út janúar.
Samkvæmt notendum Gleeden þá hafa „óhófleg“ hátíðahöld í lok ársins neikvæð áhrif á sambönd og bæla það niður. Það leiðir til þess að fólk „þráir frekara frelsi“. Rúmlega helmingur svarenda gáfu þessa ástæðu fyrir ótryggðinni gagnvart maka sínum í byrjun ársins. 26 prósent svarenda sögðu að þau þráðu eitthvað nýtt í líf sitt og 19 prósent sögðust hallast að því að „prufa nýja hluti“ í byrjun ársins.
„Með því að skrá sig á Gleeden eða eyða meiri tíma á vefnum þá eru notendur að leita eftir aukinni spennu í sitt daglega líf,“
sagði Solene Paillett starfsmaður Gleeden við Mirror.