Disney aðdáendur komu með þá kenningu í fyrra að teiknimyndapersónan Tarzan væri litli bróðir Önnu og Elsu í Frozen. Kenningin var að foreldrar stúlknanna hefðu ekki farist á sjó heldur endað á fjarlægum stað við strendur Afríku í stórum frumskógi. Nú hefur leikstjóri Frozen staðfest að það er satt!
Foreldrar Önnu og Elsu ætluðu í tveggja vikna ferðalag en í stormi þá hvarf báturinn. Flestir áhorfendur Frozen töldu að þau hefðu látist en svo var ekki raunin. Áður en þið hættið að vera sorgmædd skulið þið bíða aðeins því þau dóu… bara aðeins seinna en áður var talið.
Hugmyndin að þessu kviknaði á fundi leikstjóra myndarinnar, Chris Buck og Jen Lee. Í viðtali við MTV sagði Chris: „Auðvitað dóu foreldrar Önnu og Elsu ekki. Jú það varð skipbrot, en þau voru á skipinu miklu lengur en við höldum því móðirin var ófrísk og fæddi lítinn strák um borð. Þau lenda í skipsbroti og einhvern vegin reka þau á land langt frá Skandinavíu og enda í frumskóginum. Þau byggja sér tréhús en blettatígur drepur þau, svo litli drengurinn þeirra er alinn upp af górillum.“
Framhaldið af sögu drengsins má finna í Disney myndinni Tarzan. Elite Daily tók saman skemmtileg viðbrögð fólks við þessu á Twitter.