Veitingastaðurinn Sushi Samba hefur nú skipt um nafn. Þetta var tilkynnt á Facebook síðu veitingastaðarins vinsæla réttí þessu. Staðurinn heitir nú Sushi Social en í tilkynningunni segir meðal annars:
„Nýtt ár – nýtt nafn! Sushi Social er nýja nafnið okkar og við erum að fíla það í botn! Nafnið vísar bæði í djúsí sushi-ið sem við erum þekktust fyrir og líka í stemninguna, tengslin og það frábæra samfélag sem er staðurinn, gestirnir og að njóta og hafa gaman saman.“
Nafnið á Facebook síðu sushi staðarins hefur nú þegar verið breytt í „Sushi Social“ og breytist nafnið á vefnum, heimasíðunni og inni á staðnum á næstu dögum. „En ekki örvænta, það er ekkert annað að breytast,“ segir enn fremur í tilkynningunni sem sjá má hér fyrir neðan.