Vandræðaskáldin er dúett sem þau Sesselía Ólafsdóttir, leikkona og leikstjóri, og Vilhjálmur B. Bragason, leikskáld og rithöfundur, skipa. Þau troða upp á samkomum – en eiga það líka til að birta myndbönd á facebook síðu sinni með skemmtilegum lögum.
Áramótakveðjan þeirra er alveg prýðileg og reifar það sem gerðist á árinu 2016 á lipran hátt!