Nú er nýtt ár gengið í garð og er það tilvalinn tími til þess að breyta um venjur og bæta það sem betur má fara, sérstaklega þegar kemur að umhirðu húðarinnar. Húðin er stærsta líffærið okkar og því gríðarlega mikilvægt að hugsa vel um hana alla daga. Á þessum kaldasta tíma ársins þarf andlitið mikinn raka. Það má ekki sleppa því að bera á sig gott rakakrem kvölds og morgna en það er líka frábært að gefa húðinni smá auka „rakasbombu“ í hverri viku. Við á Bleikt elskum tissjúmaskana frá Garnier, Moisture Bomb Tissue Mask.
Þessir maskar gefa ekki aðeins raka heldur eru þeir fullir af andoxunarefnum og næra húðina virkilega vel. Við mælum með þessum möskum því þeir gefa húðinni líka dásamlegan ljóma. Maskarnir henta öllum húðgerðum, öllum aldurshópum og báðum kynjum. Ef tissjúmaski hentar þér ekki mælum við líka með þessum HÉR!