fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024

Minnkum matarsóun – 9 matvörur sem hægt er að frysta!

Ritstjórn Bleikt
Mánudaginn 27. febrúar 2017 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þú gætir minnkað matarsóun heimilisins OG sparað þér slatta af tíma við matargerðina ef þú venur þig á að smella fleiru í frystinn. Kíktu á listann!

1. Kryddjurtir

Ferskar kryddjurtir halda alveg bragði sínu þó þær séu settar í frysti. Það er ágætt að venja sig á að skola af þeim, þerra og hafa í loftþéttum umbúðum (poka eða plastboxi). Einnig er upplagt að búa til kryddsmjör og eiga í frystinum og galdra fram með grillmatnum. Í kryddsmjör er hægt að nota ýmsar kryddtegundir sem blandað er saman. Prófaðu til dæmis að bæta hvítlauki, sítrónuberki og salti við væna smjörklípu, rúlla í plast og frysta.

2. Smákökudeig

Er smá deigklípa eftir en þú ert kannski ekki alveg að nenna að skella hálffullri plötu inn í ofn? Settu þá afganginn af hráa deiginu í frysti! Það er ágætt að vera búinn að skipta deiginu í hæfilega stóra bita þannig að hægt sé að smella því beint á bökunarplötu og inn í ofn þegar löngunin í nýbakaðar smákökur vaknar.

3. Soðið pasta

Það er hægt að frysta allar pastagerðir og þannig spara töluverðan tíma næst þegar þú ætlar að bjóða uppá slíkt. Ef þú ætlar að geta hitað það upp til seinni nota er best að taka það úr sjóðandi vatninu rétt áður en það er fullsoðið. Þá klárar það suðutímann um leið og það er hitað upp t.d. í örbylgjunni.

4. Hrísgrjón, couscous og fleira

Það gerist nú alloft að fjölskyldan borðaði ekki jafn mikið af hrísgrjónum og voru soðin fyrir máltíðina. Þá er um að gera að skella í poka og inn í frysti! Mundu bara að hita almennilega áður en á að nota næst.

5. Mjólk og rjómi

Ekki setja mjólk í frysti ef þú ætlar þér að drekka hana því áferðin getur breyst. En að nota í matargerð eða bakstur virkar prýðilega. Upplagt er að gera þetta við mjólkurvörur sem eru alveg að renna út.

6. Hvítlaukur

Það er mjög enfalt að frysta hvítlauk hvort sem það er heill laukur, geirar eða pressaður/saxaður. Mikilvægast er að laukurinn sé í loftþéttum umbúðum. Það getur líka verið sniðugt að sneiða niður hvítlauk og setja í olíu og frysta svo. Olían frýs ekki og þá er einfalt að taka út og nota akkúrat passlega mikið.

7. Egg

Brjóttu eggin í skál, þeyttu þau örlítið og settu svo í box eða poka. Hvítur er líka hægt að frysta útaf fyrir sig. Best að nota innan árs.

8. Bananar

Fullkomnir í boozt! Hægt að frysta þá heila en langauðveldast er að skera þá í minni bita og setja í loftþéttan poka. Þá er hægt að kippa út nokkrum bitum eftir þörfum.

9. Avókadó

Það er ágætt að setja matskeið af sítrónu eða límónusafa á avókadókjötið og mauka það örlítið áður en því er skellt í box eða poka. Þá mislitast það ekki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Hundar fluttir í hitasjokki á dýraspítala á Akureyri – Einn nærri dauða en lífi

Hundar fluttir í hitasjokki á dýraspítala á Akureyri – Einn nærri dauða en lífi
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Margir hissa er þeir heyrðu af launum nýjasta leikmanns Manchester United

Margir hissa er þeir heyrðu af launum nýjasta leikmanns Manchester United
Fókus
Fyrir 17 klukkutímum

Pipar níunda áratugarins vísað úr flugi – Beðin um að gefa eftir sæti sitt

Pipar níunda áratugarins vísað úr flugi – Beðin um að gefa eftir sæti sitt
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Mbappe bað aldrei um þetta – „Virði hann svo mikið“

Mbappe bað aldrei um þetta – „Virði hann svo mikið“
Eyjan
Fyrir 19 klukkutímum

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Ná samkomulagi við Greenwood

Ná samkomulagi við Greenwood

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.