Leikkonan Eva Longoria sem er einna þekktust fyrir hlutverk sitt sem Gabrielle Solis í þáttunum Desperate Housewives fer á kostum í skemmtilegum auglýsingum fyrir Magic Retouch litina L‘Oreal en hún er eitt af andlitum merkisins.
Magic Retouch eru hárlitir í úðabrúsa sem eru hugsaðir til þess að þekja rót sem er að vaxa í hárinu það og svo þekja þeir alveg grá hár. Leyfum Evu að sýna okkur hvernig þið farið að…
https://www.youtube.com/watch?v=NKnoRiPH1H4
1, 2, 3 og rótin er farin! Litirnir eru svona einfaldir í notkun en það sem þarf að passa uppá er að halda brúsanum í 10 cm fjarlægð frá hárinu en dreifarinn sjálfur tryggir að liturinn fari jafnt. Litirnir eru mjög þekjandi svo það þarf ekki að nota mikið í einu. En um leið og þið gefið hárinu litinn fær það líka smá lyftingu svo þið getið líka notað það til að fullkomna áferð hársins.
https://www.youtube.com/watch?v=4XbXbX6D62Y
Magic Retouch litirnir koma í 5 ólíkum litatónum og þið veljið þann lit sem hentar ykkar hári. Spreyin má líka nota til að fylla uppí og þekja svæði hársins sem hafa jafnvel þynnst vegna hárlos eða ef þið eruð með þunnt hár og viljið aðeins þykkja það í rótinni.
Magic Retouch litirnir eru vatns- og smitheldir en þeir skolast úr í þvotti. Frábær lausn til að teygja aðeins tímann á milli þess sem hárið er litað en svo er að sjálfsögðu hægt að nota litina líka til að fá ombre áferð í hárið!