Mike Comrie fyrrverandi eiginmaður Hilary Duff er grunaður um að hafa margsinnis nauðgað konu á heimili sínu í Los Angeles um helgina. Kanadíski íshokkíleikarinn heldur því fram að allt sem gerðist þessa nótt hafi verið með samþykki þeirra beggja. TMZ segir frá þessu en þar kemur fram að talið sé að lögreglan hafi ekki yfirheyrt Mike en rannsókn sé hafin.
Samkvæmt heimildum TMZ segist konan hafa hitt hann á bar á laugardaginn og farið með honum heim þar sem hann nauðgaði henni margsinnis. Hún sagðist hafa leitað samstundis til bráðamóttöku þar sem hún var skoðuð og sýni voru tekin. Í kjölfarið leitaði hún til lögreglu. Samkvæmt TMZ á Mike hafa þekkt konuna í langan en hann segist hafa stundað kynlíf með henni, með hennar samþykki. Segir í frétt TMZ að konurnar hafi verið tvær á heimilinu þetta kvöld en hin konan hefur ekki komið fram.
Mike Comrie og Hilary Duff skildu í fyrra eftir sex ára hjónaband. Þau eiga son saman, Luca Cruz Comrie.