Grammy verðlaunin fóru fram í gær og sópaði söngkonan Adele að sér fimm verðlaunum. Hún fékk verðlaun fyrir besta lagið, bestu smáskífuna og flytjandi ársins. Þegar Adele kom upp á svið til þess að taka á móti verðlaununum fyrir plötu ársins sagðist hún ekki getað tekið við þeim, vegna Beyoncé. Hrósaði hún söngdívunni mikið og plötu hennar Lemonade, sem þó seldist minna en plata Adele 25.
https://www.youtube.com/watch?v=KaB_igy-Gmo
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fólki finnst eins og Beyoncé hefði átt að vinna á Grammy hátíðinni. Kanye West fór upp á svið Viðbrögð Beyoncé voru falleg og var augljóst að henni þótti vænt um þetta og sagðist elska Adele.
Adele endaði á að brjóta styttuna í tvennt og til að gefa Beyoncé annan helminginn. Beyoncé vann sjálf tvö verðlaun í nótt.