Jack & Jones er með ótrúlega skemmtilegan viðburð í Smáralind á fimmtudag þar sem heppnum strákum gefst kostur á að eignast ný föt frá versluninni og einn vinnur 100.000 króna gjafabréf. Viðburðurinn er fimmtudaginn 30. mars kl: 18:00 en þá vera tveir heppnir strákar sem fá kost á því að eyða 90 sekúndum inn í Jack & Jones og allt sem þeir geta KLÆTT SIG Í (ekki bara henda yfir sig) á þessum 90 sekúndum mega þeir eiga.
Reglurnar eru að þeir verða að klæða sig í allar flíkurnar og án þess að skemma þær að sjálfsögðu. Sá sem nær að klæða sig í fleiri flíkur á þessum 90 sekúndum fær einnig að launum 100 þúsund króna gjafabréf svo það er til mikils að vinna. Ef þeir eru snöggir og sniðugir og mæta til dæmis bara á nærbuxunum þá ættu þeir auðveldlega að ná að klæða sig í fatnað fyrir yfir 100 þúsund krónur. Skráning fer fram HÉR!
Við hvetjum svo að sjálfsögðu alla til þess að koma og fylgjast með þeim kl: 18:00 á fimmtudag í verslun Jack & Jones í Smáralind því hugsanlega verður einum heppnum áhorfenda gefinn kostur á því að taka einnig þátt! Viðkomandi verður þá valinn af meðlimum Áttunnar. Pepsi verður í boði fyrir gesti og gangandi.
Við á Bleikt hvetjum lesendur til að mæta á viðburðinn og hugsanlega velur áttan ÞIG til að taka þátt.