fbpx
Miðvikudagur 02.apríl 2025

Glowie gerir geggjaðan samning við plöturisa – Meikar það í útlöndum!

Ritstjórn Bleikt
Föstudaginn 24. mars 2017 11:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngkonan Glowie (Sara Pétursdóttir) var að undirrita samning við útgáfurisann Columbia í Bretlandi. Mbl greindi frá þessu í morgun.

Glowie hefur unnið mikið að undanförnu með Pálma Ragnari Ásgeirssyni, lagahöfundi, sem er meðlimur StopWaitGo-teymisins.

Sara Pétursdóttir

Lestu meira: Þegar Sara var að stíga sín fyrstu skref í tónlistinni birtum við á Bleikt viðtal við hana. Lestu það hér.

Sindri Ástmarsson er umboðsmaður Glowie, en í samtali við Mbl segir hann að mörg plötufyrirtæki hafi sýnt söngkonunni áhuga og að hún hafi geta valið milli risanna.

Sindri er enginn nýgræðingur þegar kemur að því að slá í gegn á erlendri grundu, hann var m.a. umboðsmaður Kaleo, en hann segir þennan samning þann stærsta sem hann hefur komið að. Hann bætir því við að þetta sé einn stærsti plötusamningur sem Íslenskur tónlistarmaður hefur gert erlendis.

Teymið á bak við Glowie mun telja 50 manns.

 

 

Mbl ræddi einnig við Söru sjálfa um samninginn, eins og við er að búast er stór draumur að rætast.

„Þetta er bara búið að ger­ast svo hratt. Ég var ný­kom­in úr flugi þegar ég skrifaði und­ir og náði ekki að sofa neitt. Svo var ég bara hálf­dof­in rest­ina af deg­in­um. Þegar ég skoða mynd­ir frá þessu sé ég hvað ég stíf, bæði þreytt og svo bara gjör­sam­lega agndofa yfir þessu öllu sam­an,“

seg­ir Sara við Mbl.

Sara segir að pabbi hennar hafi stutt hana í öllu ferlinu og sé stór partur af því.

Margar stórstjörnur eru á mála hjá Columbia. Meðal þeirra eru Cal­vin Harris, Adele, Beyonce, Daft Punk, Mark Ronson, Bruce Springsteen, Robbie Williams, Foo Fithg­ters og Bob Dyl­an.

Skellum hér inn einu uppáhaldslagi okkar á Bleikt sem Glowie hefur flutt – hér er hún með Högna Egilssyni í laginu All out of luck sem Selma okkar allra flutti í Eurovision um árið!

Umfjöllun Mbl má lesa í heild sinni hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Gómaði Teslu-skemmdarvarg og lét hann heyra það – Sjáðu myndbandið

Gómaði Teslu-skemmdarvarg og lét hann heyra það – Sjáðu myndbandið
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Sjáðu mark Saka í endurkomunni eftir stórkostlega stoðsendingu Martinelli

Sjáðu mark Saka í endurkomunni eftir stórkostlega stoðsendingu Martinelli
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Starfsmenn Morgunblaðsins létu vaða á súðum á bjórkvöldi – Sögðu Guðmund Inga varla læsan og líktu Ásthildi Lóu við frægan eltihrelli

Starfsmenn Morgunblaðsins létu vaða á súðum á bjórkvöldi – Sögðu Guðmund Inga varla læsan og líktu Ásthildi Lóu við frægan eltihrelli
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Byrjunarliðin í enska boltanum – Hojlund á bekknum

Byrjunarliðin í enska boltanum – Hojlund á bekknum
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sá fyrsti af þremur mikilvægum leikjum Íslands fer fram á morgun

Sá fyrsti af þremur mikilvægum leikjum Íslands fer fram á morgun
Eyjan
Fyrir 15 klukkutímum

Ber mál Le Pen saman við mál Flokks fólksins

Ber mál Le Pen saman við mál Flokks fólksins

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.