fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024

Glódís tottar hann en fær ekki fullnægingu sjálf – „Samt finnst mér þetta ótrúlega fullnægjandi og heitt“

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 22. mars 2017 22:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kæra Ragnheiður

Ég er ekki beint að leita ráða, er frekar bara forvitin og langar að heyra álit þitt.
Þannig er mál með vexti að í rúmt ár hef ég átt „vin“. Við kynntumst á Tinder og eftir smá spjall og daður ákváðum við að hittast.

Til að gera langa sögu stutta þá varð ekkert úr neinu þegar við hittumst, hann er mjög myndarlegur og sexý en vissi fullvel af því svo ég skellti í lás og vildi ekkert með hann hafa.
Svo var ég stundum að sjá hann á djamminu en lét eins og ekkert væri. Seinna sendir hann mér svo skilaboð á Facebook þar sem hann baðst afsökunar á því hvernig hann hefði verið hrokafullur og leiðinlegur svo ég ákvað að gefa honum annan séns.

Það gekk svona glimrandi vel og við höfum hist reglulega síðan. Nú heldur þú kannski að við séum að stunda „venjulegt“ kynlíf, gefa og þiggja eins og algengt er en það er ekki þannig.

Þetta er kona. Myndin tengist greininni ekki beint. Mynd: Getty

Ehemmm… Ég totta hann og rimma einungis og ég elska það. Og hann líka. Hann er flottur kroppur og með flott tippi en ég hef ekki áhuga á að vera með honum á annan hátt.

Einu sinni prófaði ég að leyfa honum að ehemm fara inn í mig en ég var ekki að fíla það svo ég henti honum af baki ef ég á að segja satt. Ekki vegna þess að hann væri lélegur heldur var það bara ekki að virka fyrir mig.

Málin eru semsagt þannig að stundum hefur hann samband og ef ég er gröð þá segi ég já komdu. Hann kemur, við segjum ekki neitt, ég hendi honum á rúmið og ég geri það sem ég vil við hann, hluti sem engin önnur stelpa hefur gert við hann eins og að rimma t.d. (sleikja rassinn) og putta hann.

Og það er alls ekki þannig að hann hafi samband einungis og biðji um að fá að koma heldur hef ég oft samband að fyrra bragði til að fá hann til mín þó að ég viti að ég sjálf fá ekki fullnægingu eða einhvern líkamlegan unað.

Samt finnst mér þetta ótrúlega fullnægjandi og heitt einhvernveginn, ég hringi, hann kemur, ég geri minn galdur, mislengi og misjafnt eftir stemmara. Hann fær það, klæðir sig og fer og ég fer aftur að horfa á House of Cards í tölvunni.

Svo hef ég átt aðra „vini“ þar sem þetta er alls ekki svona, heldur meira venjulegur bólhittingur með öllu sínu fjöri.

Er þetta eitthvað semþú hefur heyrt af eða gætir tengt við? Ég er kannski meira Dom í kynlífi en sub en án þess að vera að rassskella, binda og svoleiðis, en ég vil fá að stjórna frekar svo þetta gæti kannski eitthvað verið tengt því?

Fyrirfram takk.

Glódís

 

Kæra Glódís

Ég vil byrja á að þakka þér fyrir póstinn – frásögn þín sýnir að kynlíf er fjölbreytt og það eru misjafnir hlutir sem við njótum á misjöfnum tímum. Ég meina, ekki mundum við vera til í sushi á hverju kvöldi, þó að það sé sjúklega gott af og til!

Mér finnst nákvæmlega ekkert að þessu fyrirkomulagi hjá þér og piltinum fríða. Þið eruð að uppfylla einhvers konar þörf hjá hvort öðru og ekki að meiða neinn með því sem þið gerið saman.

Ef þú sætir eftir þessa fundi með óbragð í munni (jafnvel í eiginlegum og óeiginlegum skilningi) þætti mér ástæða til að skoða málið.

Það má vel vera að þú sért þarna að fá útrás fyrir Dom, eða drottnandi, hliðina þína. En hafðu í huga að fólk þarf ekki að vera annað hvort Dom eða sub, drottnandi eða undirgefið, heldur getur verið ýmislegt þarna á milli. Sumir skilgreina sig sem „switch“, og skiptast á að vera drottnandi eða undirgefnir í leikjum, og margir prófa sig áfram með ýmis konar hlutverk – eru meira forvitnir. Allt á þetta rétt á sér og þú þarft ekki að skilgreina þig frekar en þú vilt.

Annað sem ég vil minnast á er að í valdaleikjum er fullnæging þátttakenda ekki endilega markmiðið eða endapunkturinn sem stefnt er að. Fullnægingar eru æði, en það er til ýmislegt annað sem kemur hormónaflæðinu af stað og framkallar sælu innra með okkur. Fyrir marga snúast BDSM-leikir um annars konar kikk, einmitt þetta sem þú lýsir – að hafa valdið og stjórna. Njóttu þess kona!

Bestu kveðjur,

Ragga

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 10 klukkutímum

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ná samkomulagi við Greenwood

Ná samkomulagi við Greenwood
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Vilhjálmur er með hugmynd um hvernig bjarga megi Akranesi en til þess þurfi hugrekki – „Við verðum að snúa vörn í sókn“

Vilhjálmur er með hugmynd um hvernig bjarga megi Akranesi en til þess þurfi hugrekki – „Við verðum að snúa vörn í sókn“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Ronaldo versti sóknarmaður EM – Mjög óvænt nafn rataði á listann umdeilda

Ronaldo versti sóknarmaður EM – Mjög óvænt nafn rataði á listann umdeilda
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Svona lítur lið Evrópumótsins út

Svona lítur lið Evrópumótsins út
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

Stórleikarinn kominn með nýja kærustu upp á arminn – Þremur árum eldri en dóttir hans

Stórleikarinn kominn með nýja kærustu upp á arminn – Þremur árum eldri en dóttir hans

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.