Alba Parejo fæddist með meira en 500 fæðingarbletti um allan líkama og var lögð í hrottalegt einelti sem barn. Núna, 16 ára gömul, er hún hamingjusöm og ánægð í sínum líkama og hvetur aðra til að gera hið sama.
Alba þjáist af sjaldgæfum húðsjúkdómi (e. congenital melanocytic nevus) sem orsakar að stórir og dökkir blettir myndast um allan líkamann og andlit. Þegar hún var ungbarn þurfti hún að fara í meira en 30 aðgerðir til að laga svæði á líkamanum og fékk mikið af stórum örum í kjölfarið. Þó svo að skólafélagar hennar hafi kallað hana „skrímsli“ og lagt hana í hrottalegt einelti, þá hefur hún eins og sannkölluð hetja ákveðið að hlusta ekki á þau og eltast við drauminn um að verða fyrirsæta.
Alba hefur verið á forsíðu tímarita í bænum sínum og farið í nokkrar atvinnumyndatökur. Hún berst einnig fyrir sjálfsást og að auka vitund fólks um húðsjúkdóma. Hún notar myllumerkið #BareYourBirthmark á Instagram til að hvetja aðra til að elska húðina sína. Bored Panda greinir frá.
Ég er mikið líkamsöruggari og reyni að fræða fólk um sjúkdóminn minn til að hjálpa öðru fólki,
skrifaði hún á síðuna sína. Sjáðu myndir af þessari gullfallegu stúlku hér fyrir neðan.