Eden Grinshpan er með sinn eigin sjónvarpsþátt, Eden Eats, á Cooking Channel og er kynnir í Top Chef Canada sem hefja göngu sína eftir mánuð. Hún er um þessar mundir ófrísk og að „borða fyrir tvo“ er ekkert nýyrði fyrir hana. Auk þess að vera í sjónvarpi þá er hún bloggari og Instagrammari og deilir alveg stórkostlegum myndum á Instagram síðunni sinni.
Í vikunni sigraði hún hjörtu netverja þegar hún deildi myndbandi af sér sjálfri dansandi með óléttubumbuna út og ostborgara í sitthvorri höndinni.
Hún notar venjulega myllumerkið #EdenEats en hefur breytt því í #EdenEatsfor2 á meðan hún er ólétt. Hún er bara algjör snillingur, við hjá Bleikt erum yfir okkur hrifnar af Instagram síðunni hennar og viljum deila með lesendum okkar nokkrum myndum frá Eden.
Ef þú notar ekki bumbuna þína sem disk… þá ertu að gera þetta kolrangt,
skrifaði Eden við eina mynd.