Styrktarfélagið Göngum saman fagnar tíu ára afmæli í ár og af því tilefni er ýmislegt á döfinni. Hlín Reykdal hefur hannað nisti í tveimur litum sem verða seld á næstu dögum til styrktar grunnrannsóknum á brjóstakrabbameini. Omnom verður með sérstakan súkkulaðiglaðning í apríl, Hildur Yeoman hannar boli og fleira fyrir mæðradagsgönguna 14. maí og Landsamband bakameistara leggur félaginu lið með sölu á brjóstabollum mæðradagshelgina eins og undanfarin ár. Í haust er svo fyrirhugað afmælismálþing félagsins.
Göngum saman styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini og hefur veitt íslenskum vísindamönnum 70 milljónir í styrki frá upphafi. Styrktarfélagið leggur áherslu á mikilvægi hreyfingar til heilsueflingar og vikulegar göngur félagsins eru opnar öllum áhugasömum. Upplýsingar um stað og stund er að finna á heimasíðu samtakanna gongumsaman.is og á facebook síðu félagsins.
Salan á nistunum hefst laugardaginn 18. mars klukkan 15:00 með gleðistund í verslun Hlínar á Fiskislóð 75. Nistin verða seld hjá Hlín í tvær vikur, eða meðan birgðir endast. Einnig er tekið við pöntunum í gegnum skilaboð á Facebook síðu félagsins ef fólk vill fá nisti í póstkröfu.