Elon Musk ætlar að flytja eina milljón manns til Mars, þannig að við ættum að byrja að undirbúa okkur undir lífsskilyrði í geimnum. Sem betur fer þá eru til geimfarar eins og Chris Hadfield sem tileinka hluta af tímanum sínum í geimnum því að fræða fólk um að lifa í umhverfi með engu þyngdarafli.
Í þessu myndbandi bleytir Chris handklæði og vindur það á meðan hann er í alþjóðlegu geimstöðinni. Hann byrjar að bleyta handklæðið á mínútu 1:40. Sjáðu hvað gerist!