Í byrjun mars gaf Lorde loksins út nýtt lag eftir tveggja ára hlé. Lagið heitir „Green Light“ og er fyrsta lagið á nýju plötunni hennar. Þetta er þá önnur plata Lorde og tilkynnti hún á dögunum að hún mun heita Melodrama og komi út 16. júní.
Nú hefur Lorde blessað okkur með öðru lagi af plötunni sem heitir „Liability.“ Lagið er draumkennd ballaða um ástarsorg. Allir sem hafa fengið að heyra að þau séu „aðeins of mikið“ frá einhverjum sem þeir elska, á rómantískan hátt eða annann, ættu að tengja við lagið. Hlustaðu á það hér fyrir neðan.