fbpx
Laugardagur 20.júlí 2024

54 milljónir króna í lýtaaðgerðir og er nú kallaður hinn mannlegi Ken – Myndband

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 12. mars 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir leggja mikið á sig til að uppfylla harða fegurðarstaðla nútímans en fáir ganga jafn langt og Rodrigo Alves. Hann hefur lagst undir hnífinn oftar en hann getur talið, þar af átta nefaðgerðir. Það er óhætt að segja að útlit hans sé framandi en mörgum þykir hann svipa mjög til kærasta Barbie, Ken. Dæmi hver fyrir sig.

Skötuhjúin Barbie og Ken á góðri stundu.

Rodrigo mætti fyrir skömmu í viðtal í breska morgunþættinum „This Morning“ þar sem hann sagði sögu sína. Hann er sterkefnaður en hann erfði fasteignir frá ömmu sinni og afa. Af þeim rausnarlega arfi sem þau skildu eftir fyrir hann hefur hann eytt hálfri milljón dollara í lýtaaðgerðir.

Það eru um 54 milljónir króna og þetta er útkoman.

Það er auðvelt að sjá líkindi milli Rodrigo og Ken. Hann er þó ekki alveg á þeim buxunum.

Það var aldrei ætlun mín að líkjast Ken dúkkunni en svo er mér sagt. Ég er persónulega ekki sammála því.

Hinn þrjátíu og þriggja ára gamli maður á nú erfitt með öndun vegna allra aðgerðanna. Að fara í svona margar nefaðgerðir segir Rodrigo að geti haft domino-áhrif sem krefjist frekara inngrips.

Ég get ekki andað núna svo ég þarf að fara aftur í aðgerð til að laga öndunina. Þetta er bara eins og þegar þú byrjar að lita á þér hárið.

Hann þvertekur fyrir það að hann sé háður því að leggjast undir hnífinn.

Enginn getur orðið háður lýtaaðgerðum, það er vitleysa að halda því fram,

segir Rodrigo í viðtalinu sem sjá má hér fyrir neðan:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Kaþólsku kirkjunni vantar 100 milljónir

Kaþólsku kirkjunni vantar 100 milljónir
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Flutningur ráðuneytanna langt kominn í glæsihýsið við Austurbakka – Óvíst um endanlegan kostnað

Flutningur ráðuneytanna langt kominn í glæsihýsið við Austurbakka – Óvíst um endanlegan kostnað
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Fer fram á skilnað frá barnsföðurnum sem ekkert hefur heyrst frá í sex ár

Fer fram á skilnað frá barnsföðurnum sem ekkert hefur heyrst frá í sex ár
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Hvernig tókst United að sannfæra Yoro? – Tilboð Real Madrid sagt miklu lægra

Hvernig tókst United að sannfæra Yoro? – Tilboð Real Madrid sagt miklu lægra
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Þarf að borga 2,3 milljónir í sekt út af ólöglegum Airbnb-rekstri – 110 brot og starfsemin talin ógn við öryggi ferðamanna

Þarf að borga 2,3 milljónir í sekt út af ólöglegum Airbnb-rekstri – 110 brot og starfsemin talin ógn við öryggi ferðamanna
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Yamal í fótspor Messi

Yamal í fótspor Messi

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.