Kubra Dagli er tvítug kona frá Istanbúl og er Taekwondo meistari. Hún hefur komið af stað umræðu á landsvísu í Tyrklandi með því að skora á staðalmyndir kvenna í íþróttum. Hún vann gullverðlaun á heimsmeistaramóti í Lima á dögunum en klæðnaður hennar vakti meiri athygli og skyggði á sigur hennar. Kubra gengur með höfuðklút, eða hijab, og keppir einnig með slíkan.
https://www.instagram.com/p/BQbDC9EFJe2/
Bæði veraldlegi og trúarlegir hópar í tyrknesku samfélagi hafa sterkar skoðanir varðandi hlutverk Kubra sem íþróttafyrirmynd. Sumum finnst höfuðklúturinn merki um aftuför, á meðan öðrum finnst afrek Kubra sýna að „höfuðklútar séu ekki hindrun.“ Þeir sem teljast mjög íhaldsamir hafa gagnrýnt Kubru verulega á samfélagsmiðlum og skilið eftir grimm ummæli á Instagram síðu hennar.
https://www.instagram.com/p/BL8z_6EFnRj/
Kubra sagði að gagnrýnin væri „truflandi,“ og hefur sagt í nokkrum viðtölum að hún sé á móti mismunun í öllum myndum og hæfni hennar í íþróttinni sé það eina sem skiptir máli.
Þau tala ekki um velgengni mína, heldur um höfuðklútinn minn. Ég vil þetta ekki. Það ætti að tala um afrek okkar. Við höfðum mikið fyrir því… Við höfum gert þjóð og lið okkar að heimsmeisturum,
skrifaði hún á samfélagsmiðla.
Ein [kynbundin hugmyndafræði] er á móti því að konur hylji höfuð sitt, hin er á móti að þær hylji það ekki, en þau sameinast með sömu kröfunni: „Vertu heima.“