Scott Disick var að uppljóstra um stórt leyndarmál. Í myndskeiði fyrir næsta Keeping Up With the Kardashians sést Scott tala við Kim og Khloé Kardashian um ferðalagið til Aspen sem hann fór í með Kourtney Kardashian og börnunum þeirra þremur.
„Fyrir ári síðan hafði ég á tilfinningunni að við töluðum ekki saman og sáum ekki hvort annað. Þannig að þetta er góð tilfinning,“
segir Scott. Hann bætir við að honum finnst allt vera á réttri leið eftir ferðalagið. Kim spyr þá Scott hvort Kourtney viti af trúlofunarhringnum sem hann keypti til að biðja hana um að giftast sér. Hann segir að hún viti af hringnum, hann heldur að hann hafi reyndar beðið hana um að giftast sér með hringnum.
„Ég hélt reyndar að við hefðum ekki sagt neinum neitt. Þetta var eitthvað krúttlegt og svo vorum við hrædd við fjölmiðlana og ákváðum að setja hringinn til hliðar og ræða þetta seinna. Sem við gerðum aldrei.“
Horfðu á myndskeiðið hér fyrir neðan af samtali Scott við Kim og Khloé.