fbpx
Föstudagur 19.júlí 2024

Vissirðu að Ivanka Trump og Jared Kushner voru í Gossip Girl?

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 27. apríl 2017 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forsetadóttirin Ivanka Trump og eiginmaður hennar Jared Kushner komu einu sinni fram í gestahlutverki í Gossip Girl. Þetta er nýr poppkúltúr-fróðleiksmoli sem lætur mann hugsa „Ha í alvöru?“ en á sama tíma „Já auðvitað.“

Þau koma fram í sjötta þætti í fjórðu seríu. Í þættinum er parið í New York Observer veislu þar sem Colin (Sam Page), eða sá sem Serena Van Der Woodsen er skotin í þá stundina, skálar hjónunum.

„Ég missi aldrei af þætti af Gossip Girl. Ég held ég sé blanda af Blair Waldorf og Lily Van Der Woodsen þegar kemur að fatastíl,“

sagði Ivanka í viðtali við InStyle árið 2010 á svipuðum tíma og þátturinn var sýndur.

En svona í alvöru, er einhver önnur raunveruleg manneskja líklegri til að vera karakter úr Gossip Girl heldur en Ivanka Trump? Hún er „Upper East Side It-Girl“ sem kemur frá valdamikilli og ríkri fjölskyldu sem er reglulega í slúðurblöðunum og með siðferði sem verður best lýst sem „sveigjanlegu“. Faðir Serenu Van Der Woodsen var meira segja leikinn af Baldwin bróður, alveg eins og faðir Ivönku! Þetta er allt of raunverulegt.

Horfðu á atriðið hér fyrir neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Kaþólsku kirkjunni vantar 100 milljónir

Kaþólsku kirkjunni vantar 100 milljónir
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Flutningur ráðuneytanna langt kominn í glæsihýsið við Austurbakka – Óvíst um endanlegan kostnað

Flutningur ráðuneytanna langt kominn í glæsihýsið við Austurbakka – Óvíst um endanlegan kostnað
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Fer fram á skilnað frá barnsföðurnum sem ekkert hefur heyrst frá í sex ár

Fer fram á skilnað frá barnsföðurnum sem ekkert hefur heyrst frá í sex ár
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Hvernig tókst United að sannfæra Yoro? – Tilboð Real Madrid sagt miklu lægra

Hvernig tókst United að sannfæra Yoro? – Tilboð Real Madrid sagt miklu lægra
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Þarf að borga 2,3 milljónir í sekt út af ólöglegum Airbnb-rekstri – 110 brot og starfsemin talin ógn við öryggi ferðamanna

Þarf að borga 2,3 milljónir í sekt út af ólöglegum Airbnb-rekstri – 110 brot og starfsemin talin ógn við öryggi ferðamanna
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Yamal í fótspor Messi

Yamal í fótspor Messi

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.