Harry Styles var að gefa út Sign of the Times, sem er fyrsta lagið hans sem sóló listamaður. Síðan One Direction fór í pásu árið 2016 hafa aðdáendur beðið óþreyjufullir eftir nýrri tónlist. Lagið hans Harry er ekki það eina sem við fáum að heyra frá honum, en hann er bráðlega að fara að gefa út plötu. Hann segist hafa skrifað um 70 lög fyrir plötuna.
„Við gerðum 50 lög og hugmyndir að lögum á Jamaica. Heil lög eru um 30 talsins líklegast. Ég skrifaði eitt af lögunum á plötunni fyrir nokkrum árum,“
sagði Harry Styles við E!Online. Hlustaðu á nýja lagið hans hér fyrir neðan.