Chelsea Manning, uppljóstrari og fyrrverandi hermaður, var látin laus úr fangelsi á miðvikudag og hefur nú fangað frelsi sínu með sumarlegri sjálfsmynd. Þetta er það fyrsta sem sést hefur af henni opinberlega árum saman. Hún kom út úr skápnum sem transkona sama ár og hún var dæmd í fangelsi. Þar á undan var hún þekkt undir nafninu Bradley Edward Manning.
https://www.instagram.com/p/BUPbwX0htrw/?taken-by=xychelsea87
Chelsea birti myndina á Instagram á fimmtudag en þar gengur hún undir notendanafninu @xychelsea87. Á miðvikudag deildi hún mynd af sínum fyrstu skrefum sem frjáls manneskja. Sama dag gæddi hún sér á gómsætri pítsusneið og skálaði í kampavíni.
Manning hlaut 35 ára fangelsisdóm árið 2013 fyrir að leka leynilegum gögnum frá Bandaríska hernum til vefsíðunnar WikiLeaks. Dómurinn var sá þyngsti sem nokkur uppljóstrari hefur hlotið í Bandaríkjunum en skömmu áður en Barack Obama lét af störfum sem forseti Bandaríkjanna mildaði hann dóm Manning umtalsvert.
Hún hefur ýmist verið hyllt sem hetja eða álitin föðurlandssvikari og mál hennar allt afar umdeilt vestanhafs sem og víðar um heim. Nú þegar hún er frjáls hyggst Manning halda áfram að berjast fyrir mannréttindum, ekki síst réttindum transfólks.