Fótboltamaðurinn Gareth Bale sem spilar með Real Madrid vakti athygli á Euro 2016 þegar sást glitta í skalla í gegnum hársnúðinn hans. Heimildamaður nátengdur honum sagði að Gareth hafi verið að nota strákasnúð í smá tíma til að fela skallann sinn sem var nýtilkominn. Þessar fregnir leiddu til þess að fleiri karlmenn ákváðu að prófa þetta sjálfir og niðurstaðan er ótrúleg.
Það þarf samt að hafa varann á og passa að snúðurinn sé ekki of strekktur. Því það getur farið illa með hárið og þarft þá mögulega að kveðja það fyrr en þú bjóst við. Við viljum samt hafa það á hreinu að hvort sem þú ert með skalla eða ekki, rokkaðu „man bun“ eins og þú vilt! Og að sjálfsögðu er engin skömm að vera með skalla og þörf fyrir að fela hann. Þitt höfuð – þitt val!