Nú fer að styttast í opnun hinna langþráðu H&M verslana á Íslandi, en keðjan áformar að opna þrjár verslanir hérlendis á næstunni. Verslanirnar verða í Smáralind, Kringlunni og á Hafnartorgi sem nú rís við hlið Hörpunnar.
Vísir lét kanna verð á nokkrum vörum í versluninni í gær og þá kom í ljós að íslensku verðin eru talsvert hærri en þau í nágrannalöndunum.
Til dæmis reyndust hvítir skór í Noregi bera verðmiða sem sýndi íslenskt verð upp á 3496 krónur, á meðan norska verðið jafngilti 2400 íslenskum krónum eða 199 norskum. Hér er íslenska verðið 45% hærra en það norska. Nokkur önnur dæmi eru tekin í frétt Vísis og verðmunurinn 45% í tveimur tilfellum og 53% í því þriðja.
Í frétt Vísis kemur fram að skriflegt erindi hafi verið sent skrifstofu H&M þar sem spurt var um ástæður verðmunarins. Þess ber að geta að á Íslandi hafa tollar af fötum og skóm verið felldir niður.
H&M svarar því til að markmið fyrirtækisins sé alltaf að viðskiptavinum standi gott verð til boða. Ekki er ljóst við hvað er átt með því enda efnahagsaðstæður á markaðssvæðum keðjunnar mismunandi. Einnig kemur fram í svarinu að alltaf þurfi að gera ráð fyrir utanaðkomandi aðstæðum svo sem flutningskosnaði og sköttum í viðkomandi landi.
Þess ber að geta að á Íslandi ber fatnaður 24% virðisaukaskatt en í Noregi 25% – svo ekki er það skýringin.
Talað er um flutningskostnað – en ætla má að flutningskostnaður sé meðal þess sem liggur að baki verði á öllum markaðssvæðum H&M enda eru fötin venjulega ekki framleidd í nágrenni við verslanirnar.
Spurningunni er þvi enn ósvarað – hvers vegna verða vörur H&M hér um bil 50% dýrari á Íslandi en í nágrannalöndunum? Í það minnsta er ljóst að hluthafar flugfélaganna geta andað léttar, því eflaust mun koma verslananna til Íslands lítið draga úr verslunarferðum Íslendinga erlendis.