Ágústa Kolbrún Róberts er lesendum að góðu kunn enda hafa heilunarmyndböndin hennar verið vinsæl um nokkurt skeið.
Núna er Ágústa byrjuð að gefa út myndbönd á ensku – en skilaboðin eru svipuð og í þeim íslensku, mannbætandi og heilandi.
Í samtali við Bleikt segist Ágústa hafa fengið skilaboð að handan um að nú væri rétti tíminn til að gefa út myndbönd á ensku.
„Skilaboðin berast mér gegnum andaheiminn og koma frá leiðbeinendum mínum þar. Ég er tilbúin núna, enda hafa viðtökur á þessu myndbandi, sem kalla má það fyrsta, verið mjög góðar. Ég finn fyrir svo miklu þakklæti og viðbrögðin eru svo jákvæð. Til dæmis fékk ég skilaboð frá stelpu sem er ljósálfur og jóga og enginn hefur skilið hana. Núna finnst eins og hún tengi við einhvern.“
Við á Bleikt óskum Ágústu innilega til hamingju með þessa nýju braut.
Hér er myndbandið – í því fjallar Ágústa um þakklæti og áföll úr fortíðinni sem við getum borið með okkur í langan tíma.
Gjörið svo vel!
Ég er svo þakklát fyrir fólkið sem hefur verið að koma til mín og þakkar mér fyrir gömlu myndböndin sem ég byrjaði á fyrir nokkrum árum. Mér þykir svo vænt um að þið komið til mín og látið mig vita…takk takk takk
Posted by Ágústa Kolbrún Roberts on 11. maí 2017